Shaw rekinn frá Denver Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. mars 2015 16:00 Brian Shaw var oft niðurlútur á bekknum meðan hann stýrði Denver. vísir/getty
Brian Shaw hefur verið sagt upp störfum sem þjálfara bandaríska NBA-liðsins Denver Nuggets. Shaw - sem lék í 15 ár í NBA, m.a. með Orlando Magic og Los Angeles Lakers - starfaði sem aðstoðarþjálfari í átta ár áður en hann fékk þjálfarastarfið hjá Denver 2013. Shaw entist hins vegar ekki lengi í sínu fyrsta þjálfarastarfi. Melvin Hunt, sem var aðstoðarþjálfari Shaws, mun stýra Denver út tímabilið en liðið er í þriðja neðsta sæti Vesturdeildarinnar, með aðeins 35% vinningshlutfall, og hefur tapað átta af síðustu tíu leikjum sínum. Shaw tók við Denver-liðinu af George Karl eftir tímabilið 2012-13, þar sem Denver vann 57 leiki og endaði í 3. sæti Vesturdeildarinnar. Shaw tókst ekki að fylgja þeim árangri eftir en Denver vann aðeins 36 leiki á síðasta tímabili og missti af sæti í úrslitakeppninni í fyrsta sinn frá árinu 2003. Denver byrjar vel undir stjórn Hunts en í nótt vann liðið Milwaukee Bucks á heimavelli, 106-95, en þar á undan hafði Denver tapað tíu heimaleikjum í röð. Dario Gallinari skoraði 26 stig fyrir Denver í nótt og Kenneth Faried var með 14 stig og 14 fráköst.Brian Shaw has been relieved of his coaching duties. Melvin Hunt will be interim head coach: http://t.co/I2XJD2gc9G pic.twitter.com/gpilKjvf3t— Denver Nuggets (@denvernuggets) March 3, 2015
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira