Irving sá um Boston er Cleveland komst í 1-0 19. apríl 2015 21:39 Kyrie Irving átti stórleik í kvöld. vísir/getty
Cleveland Cavaliers átti ekki í teljandi vandræðum með að leggja Boston Celtics að velli, 113-110, í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum austurdeildar NBA-deildar karla í körfubolta. Boston byrjaði leikinn ágætlega og var með fjögurra stiga forskot eftir fyrsta leikhluta, 31-27, en Cleveland setti í annan gír í öðrum leikhluta sem það vann, 35-23, og var 62-54 yfir í hálfleik. Kyrie Irving, leikstjórnandi Cleveland, var að spila sinn fyrsta leik í úrslitakeppni NBA og skoraði að því tilefni úr fyrstu fimm þriggja stiga skotunum sínum. Hann reyndar hitti ekki úr þeim fjórum næstu. Í heildina skoraði Irving 30 stig í leiknum, en hann skoraði 20 stig í fyrri hálfleik. Síðasta karfan í fyrri hálfleik var glæsilegur flautuþristur sem sjá má hér neðst í fréttinni. LeBron James bætti við 20 stigum fyrir Cleveland auk þess sem hann tók sex fráköst og gaf sjö stoðsendingar, en Kevin Love var með myndarlega tvennu upp á 19 stig og tólf fráköst. Isaiah Thomas var stigahæstur í liði Boston, en hann kom inn af bekknum og skoraði 22 stig og gaf 10 stoðsendingar. Cleveland er 1-0 yfir í rimmunni en vinna þarf fjóra leiki til að komast í undanúrslit austurdeildarinnar.
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira