NBA: Westbrook með 54 stig í nótt | Myndbönd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2015 09:13 Russell Westbrook. Vísir/AP
Russell Westbrook hefur aldrei skorað fleiri stig í einum leik í NBA-deildinni en að hann gerði í nótt en skapið fór með hann í lokin og Oklahoma City Thunder tapaði naumlega á móti Indiana Pacers. Russell Westbrook skoraði 54 stig í leiknum en fékk á sig örlagaríka tæknivillu á lokasprettinum. Thunder-liðið tapaði þarna í fimmta sinn í sex leikjum og er enn þá við hlið New Orleans Pelicans í baráttunni um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. Westbrook var einnig með níu fráköst og átta stoðsendingar en hann hitti úr 21 af 43 skotum utan af velli, setti niður 5 af 15 þriggja stiga skotum sínum og nýtti 7 af 11 vítum. Westbrook var kominn með 22 stig og 4 stoðsendingar eftir fyrsta leikhlutann. James Harden og félagar í Houston Rockets hjálpuðu aðeins Oklahoma City Thunder með því að vionna 121-114 sigur á New Orleans Pelican þar sem Harden skoraði 30 stig. Þetta var 35. leikurinn á tímabilinu þar sem James Harden fer fyrir 30 stigin. Tim Duncan var með 22 stig og 10 fráköst þegar San Antonio Spurs fagnaði sínum ellefta sigri í röð með því að vinna 107-91 sigur á Phoenix Suns en með þessum sigri er Spurs komið með hálfsleiks forskot á Memphis í baráttunni um sigurinn í deildinni.Úrslit úr öllum leikjum í NBA-deildinni í nótt: Indiana Pacers - Oklahoma City Thunder 116-104 Washington Wizards - Atlanta Hawks 108-99 Houston Rockets - New Orleans Pelicans 121-114 San Antonio Spurs - Phoenix Suns 107-91 LA Lakers - Dallas Mavericks 106-120
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira