Leonard frábær í sigri Spurs | Houston og Washington í góðum málum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. apríl 2015 11:01 Leonard skoraði 32 stig í sigri San Antonio í nótt. vísir/afp
Nýkjörinn varnarmaður ársins, Kawhi Leonard, átti stórleik þegar San Antonio Spurs tók forystuna í einvíginu við Los Angeles Clippers í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA í nótt. Leonard skoraði 32 stig í öruggum 27 stiga sigri meistaranna, 100-73, en Spurs leiðir einvígið 2-1. Blake Griffin, sem skoraði 27,5 stig að meðaltali í fyrstu tveimur leikjum einvígisins, var aðeins með 14 stig í nótt og þá var Chris Paul einnig rólegur, með sjö stig og fjórar stoðsendingar. Það var fátt um varnir þegar Houston Rockets bar sigurð af Dallas Mavericks í Texas-slagnum, 128-130. Houston er 3-0 yfir í einvíginu. Dallas leiddi með sjö stigum í hálfleik, 72-65, en Houston var öflugt í 3. leikhluta sem vannst 27-36. James Harden fór mikinn í liði Houston með 42 stig og níu stoðsendingar og þá var Dwight Howard með tröllatvennu, 13 stig og 26 fráköst. Monta Ellis og Dirk Nowitzki skoruðu báðir 34 stig fyrir Dallas. Washington Wizards komst í lykilstöðu í einvíginu við Toronto Raptors með sjö stiga sigri í höfuðborginni í nótt, 106-99. Pólski miðherjinn Marcin Gortat skoraði 24 stig og tók 13 fráköst í liði Washington sem er komið í 3-0 í einvíginu. John Wall átti einnig flottan leik með 19 stig og 15 stoðsendingar og þá gerði Paul Pierce 18 stig og setti niður tvær mikilvægar þriggja stiga körfur á lokakafla leiksins. DeMar DeRozan var stigahæstur í liði Toronto með 32 stig.
NBA Mest lesið Brenndi á sér höndina áður en hann kýldi í borðið Sport Moyes ældi alla leiðina til Eyja Enski boltinn Mbappé vann PSG og fær níu milljarða Fótbolti Romano segir fólki að fylgjast með Alberti í janúar Fótbolti Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Fótbolti Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Handbolti Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Enski boltinn Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Enski boltinn Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Enski boltinn Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Körfubolti Fleiri fréttir Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna „Get ekki verið fúll út í mína menn“ Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Uppgjörið: KR - ÍR 102-96 | Langþráður KR-sigur ÍA - Stjarnan 85-115 | Meistararnir búnir að finna gírinn Uppgjörið: Valur - Keflavík 111-91 | Valur þurfti ekki að hafa mikið fyrir fimmta sigrinum í röð Uppgjörið: Grindavík - Ármann 105-85| Nýliðarnir létu toppliðið vinna fyrir kaupinu sínu Hafa jafnað við metlið Golden State Warriors Sjá meira