Rose fór fyrir Chicago sem stal heimavellinum af LeBron og félögum Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. maí 2015 07:30
Chicago Bulls stal heimavallarréttinum af Cleveland Cavaliers í nótt þegar liðið vann sigur á LeBron James og félögum, 99-92, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum austurdeildar NBA í Cleveland. Cleveland var án bæði Kevins Love, sem spilar væntanlega ekki meira á leiktíðinni eftir að vera rifinn úr axlarlið, og J.R. Smith, en Chicao nýtti sér fjarveru þeirra. Derrick Rose, sem sneri aftur í lið Chicago rétt fyrir úrslitalakeppnina eftir langvarandi meiðsli, lítur betur og betur út. Hann var stigahæstur gestanna með 25 stig auk þess sem hann tók 5 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Pau Gasol var með tvennu í teignum upp á 21 stig og 10 fráköst og Jimmy Butler skilaði 20 stig og 6 stoðsendingum. Kyrie Irving fór á kostum fyrir Cleveland og skoraði 30 stig, en LeBron James var einni stoðsendingu frá þrennu. Hann skoraði 19 stig, tók 15 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Tilþrif Irvings og Rose má sjá í spilaranum hér að ofan. Chicago er 1-0 yfir í einvíginu, en liðið hefur litið vel út í úrslitakeppninni og verður ekki auðvelt fyrir Cleveland að komast í gegnum það án Love og J.R. Smith. Jimmy Butler átti stórleik gegn LeBron James: Los Angeles Clippers, sem vann meistara San Antonio Spurs í oddaleik í átta liða úrslitum, heldur áfram að gera góða hluti. Clippers vann fyrsta leikinn í undanúrslitarimmu sinni gegn Houston Rockets á útivelli í nótt, 117-101, þar sem Blake Griffin fór hamförum. Griffin var með rosalega þrennu upp á 26 stig, 14 fráköst og 13 stigsendingar, en Matt Barnes skoraði 20 stig og þeir J.J. Redick og Austin Rivers báðir 17. Þá kom Jamal Crawford sterkur inn af bekknum að vanda og skoraði 21 stig. Stóri maðurinn Dwight Howard skoraði 22 stig fyrir Houston og tók 10 fráköst, en James Harden skoraði 20 stig og tók 12 fráköst fyrir Rockets sem missti heimavallarréttinn í fyrsta leik líkt og Cleveland. Þessi lið mætast aftur aðfaranótt fimmtudags.Þrenna Griffins:
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira