Ari Freyr með mark og stoðsendingu í sigri OB Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. maí 2015 18:25 Ari Freyr Skúlason. Vísir/Getty
Landsliðsbakvörðurinn Ari Freyr Skúlason leiddi sína menn í OB Odense til 2-0 útisigurs á AaB í Álaborg í kvöld þegar liðin mættust í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Ari Freyr, sem er fyrirliði OB-liðsins, skoraði bæði sjálfur og lagði upp mark fyrir félaga sinn í leiknum. Þetta var annað mark hans á tímabilinu en Ari Freyr skoraði einnig með langskoti í 2-0 sigri á Silkeborg í apríl. Hallgrímur Jónsson spilaði ekki með OB-liðinu þar sem að hann tók út leikbann. OB Odense vann þarna sinn annan sigur í röð og hefur aðeins tapað einum af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni. Eftir sigurinn er liðið komið upp að hlið Nordsjælland í 7. og 8. sæti. Ari Freyr skoraði fyrsta mark leiksins strax á sjöttu mínútu en markið skoraði hann úr vítaspyrnu sem var dæmd á varnarmann AaB fyrir hendi. OB bætti síðan við öðru marki á 35. mínútu en Lasse Nielsen skoraði þá með skalla eftir hornspyrnu frá Ara Frey. Ari Freyr fékk gult spjald á 22. mínútu og var síðan tekinn af velli á 68. mínútu leiksins.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira