Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur hætt við að flytja Fiskistofu í heild sinni til Akureyrar. Enn stendur til að flytja höfuðstöðvar stofnunarinnar norður en aðeins Fiskistofustjórinn þarf að flytja með.
Sjá einnig: Búið að lofa ístertu á föstudaginn
Ráðherrann tilkynnti þetta á fundi með Fiskistofustjóra og fulltrúa starfsmanna þar sem hann afhenti þeim bréf um breytta tilhögun á flutningnum. Í tilkynningu sem
Guðmundur Jóhannesson, deildarstjóri veiðieftirlitssvið, sendir segir að þetta sé fullnaðarsigur starfsmanna.
Í bréfinu, sem lesa má í heild sinni hér að neðan, vísar Sigurður Ingi til álits umboðsmanns alþingis sem gagnrýndi ferlið við ákvörðun ráðherra um flutnings Fiskistofu norður á Akureyri. Í bréfinu kemur fram að starfsmenn Fiskistofu á höfuðborgarsvæðinu hafa val um hvort þeir flytji með höfuðstöðvunum eða ekki.
Fiskistofustjóri mun flytjast norður með höfuðstöðvunum og vinna þar með starfsmönnum sem þar eru fyrir.
Innlent
Sigurður Ingi dregur í land: Starfsmenn Fiskistofu þurfa ekki að flytja til Akureyrar
Tengdar fréttir
Þungu fargi létt af starfsmönnum Fiskistofu
"Það er búið að lofa ístertu á föstudaginn kemur,“ segir Björn Jónsson, kampakátur fulltrúi starfsmanna Fiskistofu.