NBA: Annar stórsigurinn í röð og Clippers er komið í 3-1 | Myndbönd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. maí 2015 07:08 DeAndre Jordan fagnar í nótt. Vísir/Getty
Los Angeles Clippers er komið í frábæra stöðu í undanúrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta eftir 33 stiga sigri á Houston Rockets í fjórða leik liðanna í nótt. Clippers er 3-1 yfir og vantar bara einn sigur í viðbót til þess að komast áfram. Þetta var annar stórsigur Los Angeles Clippers í röð í einvíginu en liðið vann heimaleikina sína með samtals 58 stigum. Næsti leikur er í Houston og þar getur Clippers komist áfram í úrslit Vesturdeildarinnar í fyrsta sinn í sögu félagsins. Miðherjinn DeAndre Jordan var heldur betur í sviðsljósinu en hann endaði leikinn með 26 stig og 17 fráköst. Jordan er ekki góð vítaskytta en upplegg Houston-liðsins var að brjóta stanslaust á honum og senda hann á vítalínuna. Þessi taktík gekk þó ekki upp á endanum. Jordan hitti reyndar aðeins úr 14 af 34 vítaskotum en hann setti nýtt NBA-met með því að taka 28 víti í fyrri hálfleiknum. Blake Griffin skoraði 21 stig fyrir Clippers-liðið, J.J. Redick var með 18 stig og Chris Paul bætti við 15 stigum og 12 stoðsendingum. James Harden var með 21 stig fyrir Houston, Trevor Ariza skoraði 18 stig og Jason Terry var með 16 stig. „Þeir gjörsigruðu okkur," sagði Kevin McHale, þjálfari Houston Rockets eftir leikinn en hann var ekki vinsæll fyrir að beita aðferðinni að senda DeAndre Jordan aftur og aftur á vítalínuna. James Harden skaut meira segja á það: „Ég er persónulega ekki hrifinn af svona en þjálfarar hafa víst mismundandi sýn á þetta," sagði Harden. „Þetta stuðaði okkur í byrjun en eftir það vorum við í góðu lagi," sagði Doc Rivers, þjálfari Los Angeles Clippers um taktík Houston-liðsins.
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira