Stjarnan krefst skaðabóta af stuðningsmanni Lech Poznan | Myndband Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. júní 2015 13:02
Aðalmeðferð í máli Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu gegn Marek Bogdan Czeski, stuðningsmanni pólska liðsins Lech Poznan, fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Czeski hljóp í leyfisleysi inn á völl Stjörnnnar í Garðabæ þegar liðin mættust í undankeppni Evrópudeildar UEFA í fyrra. Vegna þessa var knattspyrnudeild Stjörnunnar sektuð um 1,3 milljón króna af Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA. Samkvæmt upplýsingum sem koma fram á Twitter-síðu Stjörnunnar játar Czeski brot sitt og segist hafa ákveðið að nýta sér brotalamir í öryggisgæslu Stjörnunnar. Czeski er 35 ára gamall og búsettur í Hafnarfirði. Knattspyrnudeild Stjörnunnar kærði Czeski til lögreglu sem ákvað að gefa út ákæru og fara með málið fyrir dóm. Czeski er ákærður fyrir húsbrot en málið telst varða 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Krafist er að Czeski greiði tæpar 1,3 milljónir króna í sekt auk vaxta og málskostnaðar. Verjandi Czeski sagði þó að háttsemi hans hafi ekki verið refsiverð og að því væri ekki hægt að fara fram á bætur fyrir það að hlaupa inn á völlinn, þó það væri í leyfisleysi. Ákæruvaldið hafnaði þeim rökum og sagði ólöglegt að fara inn um ólæstar dyr í leyfisleysi. Von er á dómsuppkvaðningu síðar í mánuðinum. Hér efst má sjá frétt sem Guðjón Guðmundsson gerði vegna uppákomunnar í leik liðanna síðastliðið sumar.
Íslenski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Fleiri fréttir Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Real Betis - Real Madrid | Heldur Real Madrid sigurgöngunni áfram? Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Sjá meira