David Lee skipt til Boston Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júlí 2015 13:30 David Lee lék í fimm ár með Golden State. vísir/getty
Samkvæmt heimildum AP-fréttastofunnar hafa NBA-meistarar Golden State Warriors sent David Lee til Boston Celtics í skiptum fyrir Gerald Wallace. Lee varð meistari með Golden State í síðasta mánuði. Hann var þó í algjöru aukahlutverki hjá liðinu eftir að hafa verið fastamaður fyrstu ár sín hjá félaginu Lee meiddist í síðasta æfingaleiknum fyrir tímabilið í fyrra og þegar hann sneri aftur var Draymond Green búinn að hirða sæti hans í liðinu. Stjórnarmenn Golden State eru búnir að leita leiða í sumar til að skipta Lee til að losna við launapakkann hans sem er nokkuð hár. Eftir að Green fékk nýjan fimm ára samning að verðmæti 82 milljóna dollara í síðustu viku var endanlega ljóst að Lee væri á förum. Nú er ljóst að hann leikur með Boston á næsta tímabili. Lee, sem er 32 ára, er með 14,7 stig og 9,5 fráköst að meðaltali í leik á ferlinum. Hann var valinn inn í NBA-deildina af New York Knicks árið 2005 og lék með liðinu til 2010 þegar honum var skipt til Golden State. Wallace lék lítið með Boston á síðasta tímabili og skoraði aðeins 1,1 stig að meðaltali í leik. Hann átti sín bestu ár hjá Charlotte en hefur verið mikið meiddur undanfarin ár. Ólíklegt þykir að Wallace fái stórt hlutverk hjá Golden State sem er með fína breidd í vængstöðunum.Wallace átt sín bestu ár hjá Charlotte.vísir/getty
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira