Stórleikir í Borgunarbikarnum í kvöld Anton Ingi Leifsson skrifar 5. júlí 2015 06:00 Úr leik FH og KR í byrjun sumars. vísir/vilhelm
Tveir hörkuleikir fara fram í átta liða úrslitum Borgunarbikar karla í dag. Þá mætast annars vegar grannarnir í Víkingi og Val og hins vegar risarnir KR og FH. Það verður grannaslagur að bestu gerð þegar Valsmenn sækja Víkinga heim. Liðin hafa ekki mæst í bikarleik síðan sumarið 2006, en þá höfðu Víkingar betur 2-1. Garðar Jóhannsson kom þá Val yfir, en Daníel Hjaltason jafnaði metin. Höskuldur Eiríksson skoraði svo sigurmarkið stundarfjórðungi fyrir leikslok. Í annari umferð Pepsi-deildarinnar mættust liðin, en þá gerðu þau 2-2 jafntefli. Kristinn Freyr Sigurðson og Patrick Pedersen komu Val í 2-0, en þeir Pape Mamadou Faye og Agnar Darri Sverrisson jöfnuðu metin fyrir Víking. FH datt út fyrir KR í Borgunarbikarum í fyrra, en þá vann KR 1-0 sigur. KR fór þá alla leið og vann bikarinn, en markið gerði Baldur Sigurðsson sem nú leikur með SönderjyskE í Danmörku. Liðin mættust í fyrstu umferð deildarinnar og þar hafði FH betur 3-1 eftir að KR hafði komist yfir með marki frá Jacob Schoop. Kristján Flóki Finnbogason jafnaði metin og Atli Guðnason bætti við tveimur mörkum. ÍBV er komið áfram eftir sigur á Fylki í Vestmananeyjum í gær og átta liða úrslitunum lýkur svo með leik KA og Fjölnis á Akureyri á mánudag. Leikurinn hefst klukkan 20:00, en leikurinn verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport. Útsending hefst stundarfjórðungi fyrir leik, en Borgunarmörkin eru svo á mánudag.Leikir dagsins: 19.15 Víkingur - Valur (Víkingsvöllur) 20.00 KR - FH (Alvogenvöllurinn)
Íslenski boltinn Tengdar fréttir Komast KR-ingar í undanúrslitin áttunda árið í röð? KR mætir FH á morgun í risaleik átta liða úrslita Borgunarbikars karla í fótbolta. 4. júlí 2015 08:00 Mest lesið Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Kristinn: Við vorum geggjaðir Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Körfubolti Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Fótbolti Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Íslenski boltinn Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Fótbolti Fleiri fréttir Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Sjá meira
Komast KR-ingar í undanúrslitin áttunda árið í röð? KR mætir FH á morgun í risaleik átta liða úrslita Borgunarbikars karla í fótbolta. 4. júlí 2015 08:00