Barea og Matthews græddu mörg hundruð milljónir á því að Jordan hætti við Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2015 07:00 J.J. Barea. Vísir/EPA
NBA-körfuboltaliðið Dallas Mavericks hefur gert nýjan samning við leikstjórnandann J.J. Barea en þessi skemmtilegi leikmaður frá Púertó Ríkó græddi mikið á öllu klúðrinu í kringum DeAndre Jordan og hann var ekki sá eini. DeAndre Jordan var búinn að segjast ætla að skrifa undir risasamning við Dallas Mavericks en hætti svo við og samdi frekar aftur við Los Angeles Clippers. J.J. Barea ætlaði alltaf að semja aftur við Dallas Mavericks en í stað þess að fá 5,7 milljónir dollara fyrir tvö ár, eins og hann átti að fá þegar DeAndre Jordan var á leiðinni til Texas, fékk hann 16 milljónir dollara fyrir fjögurra ára samning. Dallas Mavericks átti eftir mikið pláss undir launaþakinu þar sem að DeAndre Jordan sveik Mark Cuban og hans menn og Púertó Ríkó maðurinn græddi mörg hundruð milljónir íslenskra króna á því. J.J. Barea var ekki reyndar eini leikmaður Dallas sem græddi á U-beygju DeAndre Jordan því það gerði einnig Wesley Matthews. Fjögurra ára samningur hans hækkaði um 13 milljónir dollara eftir að ljóst var að Jordan kæmi ekki. Wesley Matthews fékk á endanum 70 milljónir dollara fyrir fjögurra ára samning í stað þess að fá 57 milljónir dollara eins og hann átti að fá með því að spila við hlið DeAndre Jordan. J.J. Barea er 31 árs gamall og varð NBA-meistari með Dallas Mavericks árið 2011. Hann yfirgaf félagið í kjölfarið og fékk samning hjá Minnesota Timberwolves. Barea kom síðan aftur til Dallas á síðasta tímabili. Barea var með 7,5 stig og 3,4 stoðsendingar að meðaltali fyrir Dallas á síðasta tímabili og passaði líka vel upp á boltann því hann átti 3,78 stoðsendingar á móti hverjum töpuðum bolta.
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira