Engin smá reynsla í sóknarlínu Avaldsnes á lokasprettinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júlí 2015 09:00 Hólmfríður Magnúsdóttir í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Vilhelm
Hólmfríður Magnúsdóttir er hluti af einni reynslumestu sóknarlínu sem hefur sést í norska fótboltanum en saman hafa fimm sóknarleikmenn Avaldsnes-liðsins leikið 380 A-landsleiki fyrir landslið fjögurra þjóða. Norska úrvalsdeildarliðið Avaldsnes hefur bætt við sig tveimur leikmönnum í HM-fríinu og er heldur betur tilbúið í titilbaráttuna á móti Guðbjörgu Gunnarsdóttur og félögum í Lilleström. Auk Hólmfríðar eru hjá liðinu norsku landsliðsframherjarnir Elise Hove Thorsnes og Cecilie Pedersen, brasilíska landsliðskonan Rosana dos Santos Augusto og kólumbíska landsliðskonan Yoreli Rincón. Rosana er komin aftur til Avaldness en félagið samdi einnig við Yoreli Rincón sem vakti athygli með kólumbíska landsliðinu á HM kvenna í Kanada. Hólmfríður Magnúsdóttir hefur skorað flest landsliðsmörk af þessum fimm eða alls 33 en hún er næstmarkahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi. Avaldsnes er í 2. sæti deildarinnar, fimm sigum á eftir toppliði Lilleström en ekkert lið hefur skorað fleiri mörk í fyrstu átta umferðunum. Avaldsnes er komið með 23 mörk eða 2,9 að meðaltali í leik. Cecilie Pedersen er markahæst hjá liðinu með sjö mörk en Hólmfríður hefur skorað 5 mörk. Það verður að teljast afar ólíklegt að allar fimm verði í byrjunarliðinu í fyrsta leiknum eftir HM-fríið og samkeppnin er því orðin mjög hörð fyrir Hólmfríði.Landsleikjareynsla sóknarkvintetts Avaldsnes-liðsins: Hólmfríður Magnúsdóttir hefur skorað 33 mörk í 97 A-landsleikjum fyrir Ísland. Elise Hove Thorsnes hefur skorað 16 mörk í 85 A-landsleikjum fyrir Noreg. Cecilie Pedersen hefur skorað 13 mörk í 37 A-landsleikjum fyrir Noreg. Rosana dos Santos Augusto hefur skorað 21 mark í 112 A-landsleikjum fyrir Brasilíu. Yoreli Rincón hefur skorað 9 mörk í 49 A-landsleikjum fyrir Kólumbíu.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira