KA heldur lífi í draumi sínum um sæti í efstu deild 11. júlí 2015 14:12 Ævar Ingi Jóhannesson skoraði eina mark leiksins á 5. mínútu og tryggði þar með KA sigur á Þór. vísir/stefán
KA og Þór mættust í hörkuleik á Akureyrarvelli í dag en þetta var fyrsta innbyrgðisviðureign liðanna í deildarkeppni síðan 2012. Leikurinn var gríðarlega þýðingarmikill fyrir liðin sem bæði stefna á sæti í Pepsi-deildinni á næstu leiktíð. Ævar Ingi Jóhannesson hefur verið funheitur í liði KA á þessari leiktíð og það tók hann ekki nema 5. mínútur að koma KA yfir. Hann slapp þá einn í gegn og skoraði í annarri tilraun framhjá Sandor Matus, markverði Þórs. Sandor kom heldur betur við sögu á 14. mínútu. Þá átti Orri Sigurjónsson, leikmaður Þórs, slaka sendingu tilbaka, Húsvíkingurinn Elfar Árni Aðalsteinsson, leikmaður KA, komst inn í sendinguna og Sandor felldi hann utan teigs. Beint rautt spjald niðurstaðan og Þór manni færri. KA-menn geta þakkað Srdjan Rajkovic markverði sínum fyrir að Þór hafi ekki jafnað metin á 68. mínútu. Þá slapp Sveinn Elías Jónsson einn í gegn en Rajkovic varði frábærlega frá honum. KA hélt þetta út og fór að lokum með 1-0 sigur af hólmi. KA komst þar með upp fyrir Þór á markatölu en bæði lið eru með 18 stig, KA í 4. sæti en Þór í því fimmta. KA hefur auk þess leikið einum leik færra en nágrannar sínir í Þór.
Íslenski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Sjá meira