Athyglisverðir erlendir fyrirlesarar á bikarúrslitaráðstefnu KÞÍ 2015 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. ágúst 2015 12:00 KR-ingar geta unnið bikarinn annað árið í röð. Vísir/Andri Marinó
Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands stendur fyrir árlegri ráðstefnu í tenglum við úrslitaleik Borgunarbikarsins sem verður á milli KR og Vals um aðra helgi. Knattspyrnuþjálfarafélagið heldur ráðstefnuna í samstarfi við Knattspyrnusamband Íslands og að þessu sinni er boðið upp á athyglisverða erlenda fyrirlesarar eins og fram kemur í frétt á heimasíðu KSÍ. Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar eru nefnilega Aloys Wijnker, yfirþjálfari yngri flokka hjá AZ Alkmaar, og Martyn Heather, yfirmaður fræðslumála hjá ensku úrvalsdeildinni. Þjálfarar liðanna sem keppa til úrslita, Bjarni Guðjónsson hjá KR og Ólafur Jóhannesson hjá Val, heilsa líka upp á gesti og sérfræðingar spá í spilin. Aloys Wijnker, yfirþjálfari yngri flokka hjá AZ Alkmaar segir frá starfi akademíu félagsins en hún var í vor kosin sú besta í Hollandi. Wijnker mun einnig vera með sýnikennslu en fjölmargir íslenskir leikmenn hafa verið á mála hjá félaginu undanfarinn áratug. Martyn Heather, yfirmaður fræðslumála hjá ensku úrvalsdeildinni segir frá langtímaáætlun deildarinnar í þróun ungra leikmanna (Elite Player Performance Plan). EPPP er ætlað að auka hlut uppaldra leikmanna í úrvalsdeildinni og tekur til ýmissa þátta á borð við þjálfun, umgjörð, menntun og kostnað. Athygli þjálfara er vakin á því að ráðstefnan veitir 6 endurmenntunarstig á UEFA A og UEFA B þjálfaragráðum.Dagskrá 10.00 Ávarp formanns KÞÍ 10.10 Uppbygging yngri flokka AZ Alkmaar Aloys Wijnker, yfirþjálfari yngri flokka hjá AZ Alkmaar 11.30 Sýnikennsla Aloys Wijnker 12.30 Matur 13.15 Elite Player Performance Plan Martyn Heather, yfirmaður fræðslumála hjá Premier League í Englandi 14.15 Þjálfarar liðanna sem leika úrslitaleikinn segja frá undirbúningi liðanna 14.45 Kaffi og spáð í leikinn með sérfræðingum 16.00 Bikarúrslitaleikur Verð á ráðstefnuna er 5.000 krónur fyrir félagsmenn KÞÍ. Verð fyrir þá sem eru ekki félagsmenn er 10.000 krónur. Innifalið í verðinu er hádegismatur og miði á bikarúrslitaleikinn. Ráðstefnan er opin öllum. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á arnarbill@ksi.is með upplýsingum um nafn og kennitölu. Ráðstefnan verður haldin í Laugardalnum.
Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira