Sá stoðsendingahæsti í NBA í dag samdi við sitt áttunda NBA-félag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. ágúst 2015 09:30 Andre Miller. Vísir/Getty
NBA-liðið Minnesota Timberwolves hikar ekki við að semja við eldri leikmenn því auk þess að gera tveggja ára samning við hinn 39 ára gamla Kevin Garnett þá hefur félagið einnig samið við leikstjórnandann og reynsluboltann Andre Miller. Andre Miller er 39 ára gamall og framundan er sautjánda tímabil hans í NBA-deildinni. Miller mun keppa um leikstjórnendastöðuna við Spánverjann Ricky Rubio og nýliðann Tyus Jones. Andre Miller gerði eins árs samning við Minnesota Timberwolves. Miller er að fara að spila fyrir sitt áttunda NBA-félag á ferlinum en hann var með 4,4 stig og 3,5 stoðsendingar að meðaltali með Washington Wizards og Sacramento Kings á síðasta tímabili. Auk þessara tveggja liða þá hefur hann einnig spilað fyrir Cleveland Cavaliers, Los Angeles Clippers, Philadelphia 76ers, Portland Trail Blazers og Denver Nuggets. Andre Miller hefur spilað yfir 80 leiki á fjórtán af sextán tímabilum sínum í NBA og er í dag sá leikmaður deildarinnar sem hefur gefið flestar stoðsendingar á ferlinum. Miller er kominn upp í níunda sæti á þeim lista með 8437 stoðsendingar í 1265 leikjum. Miller hefur ennfremur þann vafasama heiður að vera eini leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar með að minnsta kosti 16 þúsund stig, 8 þúsund stoðsendingar og 1500 stolna bolta án þess að hafa nokkurn tímann spilað Stjörnuleik.
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira