Klaufabárðurinn McGee til Dallas Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. ágúst 2015 17:30 McGee hefur átt erfitt uppdráttar á undanförnum árum. vísir/getty
Dallas Mavericks hefur samið miðherjann JaVale McGee um að leika með liðinu næstu tvö árin. Dallas verður fjórða liðið sem McGee spilar með í NBA-deildinni en Washington Wizards valdi hann númer 18 í nýliðavalinu 2008. McGee lék með Washington í fjögur ár áður en honum var skipt til Denver Nuggets í mars 2012. McGee lék með Denver þar til í febrúar á þessu ári þegar hann fór til Philadelphia 76ers. Miðherjinn lék aðeins sex leiki með Philadelphia áður en samningi hans var rift. Þrátt fyrir gríðarlega mikla líkamsburði (miðherjinn er 2,13 metrar á hæð, 122 kg og með vænghaf upp á 2,30 metra) hefur McGee átt erfitt uppdráttar undanfarin ár m.a. vegna meiðsla. Þá hefur frammistaða hans á vellinum ekki alltaf verið upp á marga fiska. Miðherjinn er þekktur fyrir að gera fáránleg og barnaleg mistök en hann er reglulegur skotspónn Shaquille O'Neal í dagskrárliðnum Shaqtin' a Fool í þættinum Inside the NBA þar sem brosleg mistök í NBA-deildinni eru dregin fram í dagsljósið. Dallas vann 50 leiki í fyrra en liðið tapaði 4-1 fyrir nágrönnum sínum i Houston Rockets í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
NBA Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira