Aukin hætta á skriðuföllum vegna mikilla vatnavaxta Gissur Sigurðsson skrifar 8. september 2015 12:24
Búist er við vatnavöxtum í ám á vestanverðu landinu og aukin hætta er á skriðuföllum vegna mikillar úrkomu næstu sólarhringa. Úrkoman sem féll á Ölkelduhálsi á Hellisheiði síðastliðinn sólarhring var slík, að hún hefði að líkindum valdið flóðum á láglendi og yfirfyllt niðurföll í þéttbýli. Aðal úrkomusvæðin verða svo einkum austur með suðurströndinni næstu tvo sólarhringa. Það hefur líka ringt óhemju mikið í Bláfjöllum og í Grundarfirði, en rigningin á Ölkelduhálsi á þó metið að sögn Þorsteins V. Jónssonar veðurfræðings. „Það rigndi mest núna á Ölkelduhálsi en úrkoman þar var 146 millimetrar síðasta sólarhringinn.“ Aðspurður segir Þorsteinn að þetta skapi ekki hættu á skriðuföllum. „Ekki á þessum slóðum, nei. Þarna er mikið af gljúpu hrauni sem sýgur vatnið í sig.“Hvað myndi það þýða ef að þetta væri í byggð? Myndu niðurföll fyllast eða hvað? „Já, það myndi væntanlega þýða það að niðurföll myndu fyllast og gætu orðið flóð á lægstu punktunum í bænum ef þetta myndi fara hérna yfir byggð. Niðurföllin myndu varla hafa undan.“En hvað er framundan næsta sólarhring? „Rigningin heldur áfram en síðan færist smám saman regnsvæðið austar, austur í Mýrdal og undir Vatnajökul næstu tvo sólarhringa.“ Sjá nánar á veðurvef Vísis.
Veður Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira