Ekki lengur í uppvaskinu Viktoría Hermannsdóttir skrifar 5. september 2015 13:30 Kristján Guðmundsson Teikning 13, 1989 Grafít, pappi.
Kristján Guðmundsson er einn þekktasti myndlistarmaður Íslendinga og er talinn á meðal helstu frumkvöðla á sviði hugmyndalistar og minímalískrar myndlistar. Sýning á eldri verkum hans frá árunum 1972 til 1989 var opnuð í Galleríi I8 á fimmtudag. Kristján Guðmundsson Orsök og afleiðing I-III, 1976. ?Leiðréttingarborði, pappi. „Ég vinn sem minnst í dag, það er prinsippið,“ segir Kristján kankvís þegar blaðamaður spyr hann hvernig listsköpun hans sé háttað. Hann er með vinnustofur en segist lítið heimsækja þær. „Það er nú aðallega geymsla fyrir efni,“ segir hann. „En jú, ég er nú alltaf að gera eitthvað.“ Sýningarferill Kristjáns spannar um fjóra áratugi. Fyrstu sýninguna hélt hann á Mokkakaffi árið 1967. Síðan þá hefur Kristján sýnt víða um heim og er fyrir löngu orðinn einn þekktasti myndlistarmaður þjóðarinnar. Hann tilheyrir SÚM-hópnum svokallaða, hópi ungra og framsækinna listamanna sem vöktu athygli á sjöunda áratugnum. Hraðar, hægar heitir þetta verk og er frá árinu 1984. Tvær malarhrúgur, önnur mynduð úr fjörugrjóti, hin mulin með vélarafli. Að baki verkinu eru ferli sem annars vegar hafa tekið margar aldir og svo hins vegar örskotsstund. Fréttablaðið/Stefán Kristján notast sjaldnast við efnivið ætlaðan listamönnum við listsköpun sína og hefur frekar sótt í það almenna, iðnaðarframleiðslu, hið stóra og fjöldaframleidda. Hvaðan fær hann innblástur? „Ég veit það ekki. Héðan og þaðan. Ég fæ innblástur frá alls konar hlutum. Vinum mínum, öðrum listaverkum og úr umhverfinu. Ég er ekki mikið að spá í því, bara allt í kring. En auðvitað er það þannig samt að ef þú spáir ekki í hlutina í kringum þig þá finnur þú ekki neitt. Kristján Guðmundsson Teikning, 1987. Grafít, pappi. Kristján flutti árið 1970 með fjölskyldu sinni til Hollands þar sem hann bjó í níu ár. Meðal verka á sýningunni eru verk sem hann vann meðan hann bjó í Hollandi. Þau ár eru mikilvægur tími rannsóknar og þróunar í list hans en þar rannsakaði hann grunnatriði teikningar sem liggja að baki teikningu, pappírinn, pennann og línuna, líkt og sjá má á ýmsum verkum hans á sýningunni. Teikningin varð að vísindalegu ferli þar sem hann notaðist meðal annars við skeiðklukku og reglustiku þegar línan var dregin. Þetta má meðal annars sjá í verkinu 6 x 7 jafntíma línur frá 1974 þar sem hann notast við blátt skrifblek. „Hver lína er jafn lengi að verða til en þær eru mismunandi,“ útskýrir Kristján. Í verkinu Teikning 1972 er ártalið að finna í titli myndarinnar og er jafnframt lykill að lestri hennar. „Hér eru þrír fletir sem eru 1.972 fersentimetrar, ég gerði aðra mynd árið 1973 þar sem ég var að gera það sama og þannig breyttist hún örlítið,“ segir Kristján og heldur áfram. „Verkið myndi minnka ef ártalið væri lægra og verða að engu í árinu núll.“ Á sýningunni er líka að finna verkin Orsök og afleiðing frá árunum 1974-1976 þar sem listamaðurinn tekst á við teikninguna með öfugum formerkjum. „Þarna notaði ég leiðréttingarborða úr ritvél. Og það myndar allt mismunandi afleiðingar,“ segir hann. Eftir heimkomuna frá Hollandi urðu ákveðin þáttaskil í listsköpun Kristjáns og fór hann meira að vinna með þrívídd. Meðal annars gerði hann verkið Hraðar, hægar. Þar er um að ræða tvær malarhrúgur. „Önnur er mynduð úr fjörugrjóti en hin var mulin með vélarafli,“ segir hann. Kristján Guðmundsson Orsök og afleiðing nr. 1-4, 1976. Leiðréttingarpappír, pappi. Þrátt fyrir að Kristján sé í dag einn þekktasti myndlistarmaður þjóðarinnar og vinsæll erlendis þá hefur hann ekki alltaf getað lifað á listinni og þurfti oft og tíðum að vinna aðra vinnu með. „Ég vann oft í uppvaski, bæði í Hollandi og hérna heima. Þegar ég kom heim frá Hollandi fór ég að vinna í uppvaski á Landspítalanum við stóra uppvöskunarvél,“ segir hann. Fékk hann innblástur þaðan? „Nei,“ segir hann hlæjandi. „Ég á það eftir, en ég myndi líklega ekki fá vinnu við uppvask í dag.“ Hann segist aldrei hafa misst áhugann á listinni. „Nei, ég er enn að. Ég hef haldist í þessu. Líka kannski svo ég þurfi ekki að fá mér alvöru vinnu eins og bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum talar um.“ Sýning Kristjáns í Galleríi I8 stendur til 24. október.
Myndlist Mest lesið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Bíó og sjónvarp Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Lífið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Lífið Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Lífið Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Lífið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp Eins og að setja bensín á díselbíl Heilsa Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Fleiri fréttir Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Sjá meira