Hannes fær ókeypis þrif á húsinu standi Ísland sig gegn Hollandi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. september 2015 11:00 Hannes Þór Halldórsson hefur átt ótrúlega litríkan feril og eflaust ekki margir sem áttu von á að hann næði eins langt og raunin hefur orðið. Vísir/Valli
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson segir Hollendinga reikna með auðveldum sigri gegn Íslandi. Hannes Þór gekk til liðs við hollenska félagið NEC Nijmegen í sumar frá norska félaginu Sandnes Ulf og líkar vel veran í Hollandi. „Núna tók maður bara lest í klukkutíma og kominn á hótelið,“ segir markvörðurinn um ferðalagið í þetta tiltekna landsliðsverkefni. Hann segist rosalega ánægður með lífið í Hollandi. „Þetta er svakalegt skref upp á við. Að koma úr norsku annarri deidlinni og spila núna á fullum 20 þúsund manna völlum í Hollandi. Leikurinn er miklu hraðari og það er geggjað fyrir mig að ná að taka þetta skref, vera kominn á þennan aldur og ná að gera meira úr ferlinum.“ Hannes býr með konu og barni í Hollandi og segir öllum líða vel. Félagið sé flott og allt „prima“ eins og Hollendingurinn segir. Félagar hans í hollenska liðinu eru kokhraustir í aðdraganda leiksins en þó ekki sáttir með eigið landlsið.Ókeypis þrif í húfi „Þeir tala ekki fallega um liðið en segjast þó munu rúlla yfir okkur. Menn búast við öruggum sigri,“ segir Hannes sem gerði eitt veðmál fyrir leikinn. Engir peningar eru þó í húfi. „Það er gæi í liðinu sem er team manager, sér um allt, og hann fullyrðir að Holland muni stúta okkur. Hann ætlar að þrífa allt húsið mitt ef Holland vinnur okkur ekki. Hann er það sigurviss,“ segir Hannes Þór. Hann upplifi það sem stemninguna í Hollandi. Heimamenn muni vinna sem er skiljanlegt sjónarmið enda gerist leikirnir ekki mikið erfiðari en gegn Hollandi úti. „Auðvitað þarf allt að ganga upp hjá okkur og við þurfum heppni. En við höfum spilað vel í langan tíma og erum með stöðugleika í okkar leik. Við getum því farið inn í leikinn og reiknað með því að við verðum þéttir, gefum ekki færi á okkur og eigum alltaf séns á því að stela einhverju. Við munum taka öllum úrslitum öðrum en tapi og vera sáttir með þau,“ segir markvörðurinn. Jafntefli væru fín úrslit, þau gefi okkur meira en Hollendingunum en liðið muni þó ekki spila upp á það. Það sé ekki vænlegt til árangurs.Reyni að fljúga hvorki of hátt né lágt „Við þurfum að hitta á daginn okkar og djöflast sem aldrei fyrr. Vonandi fellur þetta fyrir okkur og við göngum sáttir af velli.“ Aðspurður um eigið sjálfstraust segist Hannes vera í góðu jafnvægi. „Ég reyni ekki að vera að tapa mér þegar gengur vel eða illa, að sökkva of djúpt eða fljúga of hátt. Maður verður að einangra þetta niður í hvern leik og hvert móment, trúa á stöðguleikann,“ segir Hannes. Hann sé búinn að spila erfiða leiki undanfarið og gengið vel. „Ég er á mjög góðum stað og hef ekki yfir neinu að kvarta.“
EM 2016 í Frakklandi Tengdar fréttir Segir Hollendinga ekkert græða á því að skoða tapleikinn í Laugardalnum Aron Einar Gunnarsson og félagar í íslenska landsliðinu eru orðnir spenntir fyrir leiknum á móti Hollandi á Amsterdam Arena annað kvöld en með sigri getur íslenska liðið nánast tryggt sér sæti á EM í Frakklandi 2016. 2. september 2015 12:00 Kolbeinn þekkir hvert einasta strá á vellinum "Það verður gaman að fara á gamla heimavöllinn og vonandi stríðum við Hollendingum vel. Það yrði draumur,“ segir Kolbeinn Sigþórsson. 2. september 2015 07:30 Hollensk áhrif í íslenska liðinu Eiður Smári Guðjohnsen, Aron Einar Gunnarsson, Kolbeinn Sigþórsson, Ari Freyr Skúlason og Jóhann Berg Guðmundsson stigu allir fyrstu skrefin í atvinnumennsku í Hollandi og Alfreð Finnbogason raðaði inn mörkum í hollensku deildinni. Hjálpar þetta íslenska liðinu á móti Hollendingum á morgun? 2. september 2015 06:00 Bakvörður íslenska landsliðsins spilar sem miðvörður í sænsku deildinni Birkir Már Sævarsson var fyrir utan byrjunarlið íslenska landsliðsins í byrjun undankeppninnar en vann sig síðan inn í liðið og hefur byrjað síðustu leiki í hægri bakverðinum. 2. september 2015 10:30 Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Fleiri fréttir Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Sjá meira
Segir Hollendinga ekkert græða á því að skoða tapleikinn í Laugardalnum Aron Einar Gunnarsson og félagar í íslenska landsliðinu eru orðnir spenntir fyrir leiknum á móti Hollandi á Amsterdam Arena annað kvöld en með sigri getur íslenska liðið nánast tryggt sér sæti á EM í Frakklandi 2016. 2. september 2015 12:00
Kolbeinn þekkir hvert einasta strá á vellinum "Það verður gaman að fara á gamla heimavöllinn og vonandi stríðum við Hollendingum vel. Það yrði draumur,“ segir Kolbeinn Sigþórsson. 2. september 2015 07:30
Hollensk áhrif í íslenska liðinu Eiður Smári Guðjohnsen, Aron Einar Gunnarsson, Kolbeinn Sigþórsson, Ari Freyr Skúlason og Jóhann Berg Guðmundsson stigu allir fyrstu skrefin í atvinnumennsku í Hollandi og Alfreð Finnbogason raðaði inn mörkum í hollensku deildinni. Hjálpar þetta íslenska liðinu á móti Hollendingum á morgun? 2. september 2015 06:00
Bakvörður íslenska landsliðsins spilar sem miðvörður í sænsku deildinni Birkir Már Sævarsson var fyrir utan byrjunarlið íslenska landsliðsins í byrjun undankeppninnar en vann sig síðan inn í liðið og hefur byrjað síðustu leiki í hægri bakverðinum. 2. september 2015 10:30