Ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkurborgar að sniðganga vörur frá Ísrael þykir umdeild. Bent hefur verið á að stjórnsýsla sveitarfélaga sé lögbundin og utanríkismál heyri ekki undir verkefni þeirra.
Þegar lögfræðingar segja að stjórnsýslan sé lögbundin þá felst í því að ákvarðanir stjórnvalda verða að eiga sér stoð í lögum og vera í samræmi við lög.
„Ísraelskum vörum“
Orðrétt stendur í bókun borgarstjórnar: „Borgarstjórn samþykkir að fela skrifstofu borgarstjóra í samvinnu við innkaupadeild Reykjavíkurborgar að undirbúa og útfæra sniðgöngu Reykjavíkurborgar á ísraelskum vörum meðan hernám Ísraelsríkis á landsvæði Palestínumanna varir."
Er ekki borgin að fara langt út fyrir sitt verksvið með þessari bókun? „Nei, við höfum bæði sett okkur innkaupastefnu og innkaupareglur á grundvelli laga og eitt af því sem segir skýrt í stefnunni er að auk kostnaðar þá tökum við miða af gæðum, umhverfismálum og mannréttindum við innkaup hjá borginni,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur hefur sagt að þetta sé ekki allsherjarviðskiptabann heldur sniðganga á vörum sem tengjast mannréttindabrotum á hernumdu svæðunum.
Er gerður áskilnaður um það í texta tillögunnar. Þegar hún er lesin þá sést að þar er bara talað um vörur frá Ísrael? „Ísraelskar vörur með vísan til þessarar greinar í innkaupastefnu borgarinnar. Þannig er þetta hugsað en núna er útfærslan eftir. Ég tek eftir því, eins og aðrir í umræðunni, að þetta hefur ekki alveg komist til skila.“
Hætti við að koma til Íslands
Morgunblaðið greindi frá því í dag að William Ian Miller prófessor í háskólanum í Michigan í Bandaríkjunum hefði hætt við að koma til Íslands næsta vor en til stóð að hann héldi námskeið um Íslendingasögurnar í Háskóla Íslands. Miller er gyðingur og hefur nú skrifað borgarstjórn opið bréf þar sem hann segist þurfa að aflýsa ferð sinni vegna ályktunarinnar. Þá hefur Evrópska gyðingaþingið, sem eru samtök gyðinga í Evrópu, falið lögfræðingum að athuga hvort efni séu að bregðast sérstaklega við ákvörðun borgarstjórnar.

Hvaða vörur eru þetta?„ Við vitum það ekki. Við teljum að það sé mjög lítið. Að því leyti er þetta fyrst og fremst táknræn yfirlýsing en við munum fara yfir það núna,“ segir Dagur.
Þannig að borgarstjórn Reykjavíkurborgar vissi ekki hvaða vörur hún var að sniðganga þegar hún samþykkti þessa ályktun? „Nei, og það kom alveg skýrt fram í umræðum í borgarstjórn. Að við ætluðum að horfa til umræðunnar í Kaupmannahöfn, við ætlum að horfa til umræðunnar annars staðar og það þarf að vanda til verka í þessari útfærslu.“