Timberwolves að leysa Bennett undan samningi Kristinn Páll Teitsson skrifar 22. september 2015 12:30 Bennett í nýliðavalinu 2013. Vísir/Getty
Fjölmiðar vestanhafs greindu frá því í gær að Anthony Bennett, leikmaður Minnesota Timberwolves, yrði leystur undan samningi hjá félaginu á næstu dögum, tveimur árum eftir að hann var valinn af Cleveland Cavaliers með fyrsta vali í nýliðavalinu. Það kom töluvert á óvart þegar Cavaliers völdu Bennett með fyrsta valrétt í nýliðavalinu árið 2013 en hann varð þá fyrsti kanadíski leikmaðurinn sem var valinn með fyrsta valrétt. Kom valið töluvert á óvart en fæstir áttu von á að hann færi jafn ofarlega eftir aðeins eitt gott ár í háskólaboltanum. Eftir afspyrnu slakt fyrsta ár í herbúðum Cavaliers var hann ásamt landa sínum, Andrew Wiggins, hluti af skiptunum þegar Kevin Love gekk til liðs við Cavaliers frá Minnesota Timberwolves síðasta sumar. Lenti hann í sömu vandræðum í Minnesota en hann fékk fáar mínútur hjá félaginu sem vann aðeins 16 leiki af 82. Lék hann að meðtali 15,7 mínútur í leik og skilaði 5,2 stigum og 3,8 fráköstum að meðaltali. Hann gæti fengið þann vafasama heiður að verða fyrsti leikmaðurinn sem valinn var með fyrsta valrétt sem kemst ekki á fjórða ár samnings síns verði hann leystur undan samningi. Er hann talinn einn af slakari leikmönnunum sem hafa verið valdnir með fyrsta valrétt í nýliðavalinu en líklegt þykir að hann muni leika í deild annarstaðar en í Bandaríkjunum á næsta tímabili.
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira