Körfubolti

Valur vann fjögurra stiga sigur á Keflavík

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Guðbjörg Sverrisdóttir og stöllur hennar í Val byrja á sigri.
Guðbjörg Sverrisdóttir og stöllur hennar í Val byrja á sigri. vísir/anton
Valskonur unnu sigur á Keflavík, 92-88, í spennandi leik í fyrstu umferð Dominos-deildar kvenna í körfubolta í kvöld.

Valsliðið fór virkilega vel af stað og vann fyrsta leikhlutann, 27-14 og var yfir í hálfleik, 49-37.

Keflavíkurstúlkur komu sterkar inn í seinni hálfleikinn og unnu þriðja leikhlutann með sex stigum, 24-18, en Valskonur héldu út og lönduðu sætum sigri.

Karisma Chapman, Kaninn í liði Vals, fór á kostum í kvöld og skoraði 36 stig og tók 19 fráköst, en Bergþóra Holton Tómasdóttir skoraði 19 stig fyrir heimakonur.

Melissa Zorning skoraði 35 stig fyrir Keflavík en Marín Laufey Davíðsdóttir bættivið tólf stigum og Guðbjörg Júlíusdóttir tíum stigum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×