Arnór Ingvi með mark og stoðsendingu þegar Norrköping tryggði sér titilinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. október 2015 14:13 Arnór Ingvi átti frábært tímabil með Norrköping. mynd/norrköping
Arnór Ingvi Traustason varð í dag sænskur meistari með Norrköping en liðið bar 0-2 sigurorð af Kára Árnasyni og félögum í Malmö í lokaumferð deildarinnar. Þetta er 13. meistaratitill Norrköping en liðið varð síðast meistari árið 1992. Arnór fór mikinn í leiknum en hann lagði fyrra mark Norrköping upp fyrir Emir Kujovic eftir hálftíma leik. Kujovic launaði Arnóri svo greiðann þegar hann lagði upp mark fyrir Íslendinginn í uppbótartíma. Arnór átti frábært tímabil með Norrköping en hann skoraði sjö mörk og átti 10 stoðsendingar í 29 deildarleikjum. Norrköping, sem endaði í 12. sæti sænsku deildarinnar í fyrra, var með eins stigs forystu á IFK Göteborg fyrir lokaumferðina en Gautaborgarliðið náði aðeins jafntefli gegn Kalmar í dag, 2-2. Hjálmar Jónsson var í byrjunarliði Göteborg og lék fyrstu 88 mínútur leiksins. Haukur Heiðar Hauksson var ekki í leikmannahópi AIK sem gerði 1-1 jafntefli við Örebro á útivelli en liðið átti möguleika á meistaratitlinum fyrir lokaumferðina. Hjörtur Logi Valgarðsson og Eiður Aron Sigurbjörnsson léku allan leikinn í vörn Örebro sem átti frábæran endasprett í deildinni. Liðið var taplaust í síðustu níu leikjum sínum, vann sjö og gerði tvö jafntefli. Örebro endaði í 9. sæti deildarinnar með 37 stig, jafnmörg og Helsingborg en verri markatölu. Arnór Smárason lék allan leikinn fyrir Helsingborg sem tapaði 1-2 fyrir Häcken í dag. Jón Guðni Fjóluson og Rúnar Már Sigurjónsson voru á sínum stað í byrjunarliði Sundsvall sem tapaði 4-2 fyrir DJurgården á útivelli. Sundsvall endaði í 12. sæti deildarinnar. Þá tapaði Hammarby, 2-1, fyrir Halmstads á útivelli. Ögmundur Kristinsson stóð í marki Hammarby og Birkir Már Sævarsson lék allan leikinn í stöðu hægri bakvarðar. Hammarby endaði í 11. sæti í deildinni.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira