Farook skipulagði árás þegar árið 2012 Atli Ísleifsson skrifar 9. desember 2015 10:52 Tashfeen Malik og Syed Rizwan Farook komu til Bandaríkjanna í Chicago í júlí á síðasta ári eftir heimsókn Farook til Sádi-Arabíu. MYND/BANDARÍSKA LANDAMÆRAEFTIRLITIÐ
Syed Farook, annar þeirra sem drápu fjórtán og særðu 21 í jólaveislu í borginni San Bernardino í síðustu viku, skipulagði árás með óþekktum manni þegar árið 2012. Þetta kemur fram í frétt CNN. Farook og eiginkona hans, Tashfeen Malik, féllu eftir skotbardaga við lögreglu skömmu eftir að hafa skotið gesti jólaveislu vinnustaðar Farook. CNN hefur eftir heimildarmönnum sínum að Farook hafi horfið frá áætlunum sínum um árás í Kaliforníu árið 2012 vegna frétta af lögregluaðgerðum gegn grunuðum hryðjuverkamönnum í nágrenni San Bernardino.Sjá einnig: Malik og Farook komu til Chicago í júlí 2014Heimildarmenn CNN gefa ekki upp um hversu langt Farook var kominn í skipulagningu sinni eða hvaða afleiðingar árásin kynni að hafa. Bandaríska alríkislögreglan FBI telur að þau Malik og Farook hafi orðið róttæk í skoðunum sínum löngu fyrir árásina í síðustu viku. Við rannsókn lögreglu fannst vopnabúr á heimili sínu, þar á meðal tólk rörasprengjur.Sjá einnig: Fjöldamorðin í Kaliforníu: Parið var nýbúið að eignast sitt fyrsta barn Upplýsingar komu fram í gær að parið hafi fengið vopnin sem þau notuðust við frá fjölskyldumeðlim. Samkvæmt opinberum gögnum fengu þau vopnin frá Enrique Marquez, en húsleit var gerð á heimili hans um helgina og hann yfirheyrður. Á síðasta ári giftist Marquez konu að nafni Mariya Chernykh, en systir hennar er gift bróður Farook. MSNBC hefur eftir heimildarmönnum sínum innan lögreglu að Malik og Farook hafi haft frekari árásir í hyggju. Höfðu þau verið í samskiptum við íslamista bæði í Evrópu og Bandaríkjunum og öfgasinnaða í nágenni Los Angeles-borgar.
Mið-Austurlönd Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira