Matur

Fljótlegur kjúklingaréttur og súkkulaðimús

Eva Laufey Kjaran skrifar

Kjúklingur í flýti

Pestó með döðlum og ólífum

200 g sólþurrkaðir tómatar

100 g ristaðar furuhnetur

70 g parmesanostur

2 hvítlauksrif

salt og nýmalaður pipar

3-4 msk. góð ólífuolía

10 döðlur, skornar í tvennt

10-12 svartar ólífur, skornar í tvennt

3-4 msk. fetaostur



Setjið sólþurrkaða tómata, furuhnetur, parmesanost, hvítlauk, salt, pipar og ólífuolíu í matvinnsluvél og maukið í 1-2 mínútur.

Skerið döðlur og ólífur í tvennt, blandið saman við pestóið og bætið fetaostinum við í lokin.

Maukið saman í eina mínútu í matvinnsluvélinni.

Kjúklingalæri

600-700 g kjúklingakjöt t.d. kjúklingalæri

1-2 msk. ólífuolía

salt og nýmalaður pipar

Steikið kjúklingabitana upp úr olíu í nokkrar mínútur á hvorri hlið eða þar til bitarnir verða gullinbrúnir.

Setjið kjúklinginn í eldfast mót og smyrjið pestóinu yfir bitana. Bakið við 180°C í 30-35 mínútur og berið fram með steiktum kartöflum og klettasalati.

Súkkulaðimús og ávaxtasalsa

Súkkulaðimús

25 g smjör

200 g súkkulaði

250 ml rjómi

3 egg 

2 msk. sykur



Bræðið smjör og súkkulaði við vægan hita. Hellið súkkulaðinu í skál og blandið þremur eggjarauðum við, blandið eggjarauðunum vel saman við súkkulaðið.

Leggið súkkulaðiblönduna til hliðar. Stífþeytið þrjár eggjahvítur og bætið sykrinum smám saman við, marensinn er klár þegar þið getið hvolft úr skálinni án þess að hann hreyfist.

Blandið súkkulaðinu við marensblönduna í þremur skömmtum, í lokin er rjómanum blandað saman við með sleikju.

Hellið í skálar og geymið í kæli í lágmark 3 klukkustundir en best er að geyma súkkulaðimúsina í kæli yfir nótt.

Berið gjarnan fram með ávaxtasalsa. 

Jarðarber

Bláber

Mangó 

Safi og börkur af einni límónu 

Skerið ávexti mjög smátt og blandið límónuberki og safanum saman við. Berið fram með súkkulaðimúsinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.