Spá suðaustan strekkingi með snjókomu í kvöld á Suður- og Vesturlandi Birgir Olgeirsson skrifar 15. janúar 2016 10:24 Spákort frá Veðurstofu Íslands sem sýnir veðrið eins og það á að vera seint í kvöld. Vísir/vedur.is
Veðurstofa Íslands vekur athygli á því að spáð er suðaustan strekkingi með snjókomu seint í kvöld á Suður- og Vesturlandi. Samkvæmt spá veðurfræðings mun dagurinn byrja nokkuð vel með hægum vindi um allt land og víða léttskýjað. Um og eftir hádegi bætir hins vegar í vindinn sunnan- og vestanlands, þykknar upp og í kvöld stefnir í suðaustan 8-15 m/s og snjókomu um allt S- og V-vert landið, vestur af Öræfum og suður af Vestfjörðum. Með þessum strekkingsvindi og snjókomu getur dregið úr skyggni víða á þessu svæði, til dæmis á Hellisheiði. Í nótt dregur úr vindi og hlýnar í veðri og því líklegt að úrkoman fari út í slyddu og jafnvel rigningu. Eftir hádegi á morgun styttir að mestu upp V-lands, en slydda eða rigning um S-vert landið fram á nótt, einkum SA-til. Í dag og á morgun er útlit fyrir hægan vind og bjart og þurrt veður fyrir norðan og austan, en dálítil úrkoma gæti þó náð inn á Austfirði á morgun, snjókoma eftir hádegi, en síðan slydda annað kvöld.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ sunnudag og mánudag:Austan átt 5-13 m/s, skýjað og dálítil slydda eða snjókoma suðaustantil, en bjart veður um landið norðvestanvert. Frost víða 3 til 8 stig, en sums staðar frostlaust við suður- og suðvesturströndina.Á þriðjudag:Austlæg átt 5-13 m/s og rigning með köflum, en hægari vindur norðanlands og þurrt. Hiti víða 0 til 5 stig, en vægt frost í innsveitum norðanlands.Á miðvikudag:Útlit fyrir milda suðlæga átt með dálítilli vætu.Á fimmtudag:Líklega hvöss suðaustanátt með rigningu.Vakin er athygli á að spáð er suðaustan strekkingi með snjókomu seint í kvöld á S- og V-landi. - Strong breeze and snow is forecasted in the south and west by evening.Posted by Veðurstofa Íslands on Friday, January 15, 2016
Veður Mest lesið Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Viðskipti innlent Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum Erlent Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Erlent Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Innlent Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Innlent Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Innlent Fleiri fréttir Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Óvíst hvar börnin lenda í haust Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Setja rúma tvo milljarða í stækkun leikskóla Umfangsmeiri bankasala og áfengi á íþróttaviðburðum Fljúgandi trampólín fauk á bíla í Grafarvogi Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Telja sig vita hvernig maðurinn lést Nýja göngubrúin yfir Sæbraut fer upp í næstu viku Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Sjá meira