San Antonio enn taplaust á heimavelli Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. janúar 2016 07:08 LeBron James í leiknum í nótt. Vísir/Getty
San Antonio hafði betur gegn Cleveland, 99-95, og vann þar með sinn 32. heimaleik í röð. Liðið er enn ósigrað á heimavelli en bæði lið hafa verið á mikilli sigurgöngu í deildinni. Alls hefur San Antonio unnið tíu leiki í röð en fyrir leikinn í nótt hafði Cleveland unnið átta leiki í röð. San Antonio byrjaði fjórða leikhlutann af miklum krafti og náði þar með undirtökunum í leiknum. Tony Parker skoraði 24 stig og Kawhi Leonard var með 20 stig og tíu fráköst. LeBron James var stigahæstur hjá Cleveland með 22 stig en Tristan Thompson var með át´jan stig og fjórtán fráköst. Chicago vann Philadelphia, 115-111, í framlengdum leik. Jimmy Butler bætti persónulegt met og skoraði 53 stig en hann var þar að auki með tíu fráköst og sex stoðsendingar. Þetta var í fyrsta sinn í meira en áratug sem leikmaður Chicago skorar meira en 50 stig í leik en hvorki Derrick Rose né Pau Gasol spiluðu með liðinu í nótt. Golden State vann LA Lakers, 116-98. Steph Curry var með 26 stig en fyrstu átta körfurnar hans í leiknum voru allar þriggja stiga körfur. Þetta var líklega síðasti leikur Kobe Bryant í Oakland en hann var með átta stig, sex fráköst og þrjár stoðsendingar.Úrslit næturinnar: Orlando - Toronto 103-106 Philadelphia - Chicago 111-115 Memphis - Detroit 103-101 San Antonio - Cleveland 99-95 Utah - Sacramento 101-103 Golden State - LA Lakers 116-98
NBA Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Fleiri fréttir Tryggvi var framlagshæstur þegar sigurgangan hélt áfram Martin missir af landsleikjunum Elvar var stiga- og stoðsendingahæstur í sigri Jakob: Geggjað að fá þennan stuðning frá okkar fólki Stjörnumenn svekktir eftir leik: „Enginn í okkar liði átti A-klassa frammistöðu“ „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum „Við erum ekkert að einbeita okkur að því og ætlum bara að taka leikinn“ Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Segir Grikkjanum haldið í gíslingu Fórnuðu Luka Doncic fyrir hann en Davis náði aðeins að spila 31 leik „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ „Þá er þetta munurinn á liðunum“ Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Martin með ellefu stig í magnaðri endurkomu Alba Berlin Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 82-77 | Keflvíkingar í bikarúrslit Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið „Við þekkjum umhverfið allavega betur“ James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast „Vitum hvernig Stjarnan spilar“ Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik KR - Tindastóll 85-87 | KR-ingar í úrslit eftir háspennu „Byrjunin verður gríðarlega mikilvæg“ „Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Martin fagnaði mikilvægum sigri eftir mistök toppliðsins Sjá meira