Sjáðu sigurkörfuna hjá Durant | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. febrúar 2016 18:15 Kevin Durant tryggði sínum mönnum sigurinn í nótt. vísir/getty
Kevin Durant var hetja Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið lagði Orlando Magic, 117-114, á heimavelli. Durant, sem var stigahæstur í liði Oklahoma City með 37 stig, skoraði sigurkörfuna þegar hálf sekúnda var eftir með þriggja stiga skoti. Orlando jafnaði leikinn í 114-114 þegar lítið var eftir en í staðinn fyrir að taka leikhlé treysti Billy Donovan, þjálfari OKC, Durant fyrir að taka rétta ákvörðun í lokasókninni og það borgaði sig. Durant stökk upp í þriggja stiga skot með mann í andlitinu og hitti, en gestirnir höfðu svo ekki nægan tíma til að ná lokaskoti og reyna að jafna metin. Þetta var tólfti sigur OKC í síðustu þrettán leikjum. Liðið er á miklum skriði þessar vikurnar með Durant og Russell Westbrook í stuði, en leikstjórnandinn Westbrook nældi í þriðju þrennuna í röð í nótt þegar hann skoraði 24 stig, tók 19 fráköst og gaf 14 stoðsendingar. Sigurkörfu Durants má sjá hér að neðan.Kevin Durant. Clutch.Posted by Bleacher Report on Wednesday, February 3, 2016
NBA Tengdar fréttir Curry með galdrabrögð gegn töframönnunum | Myndbönd Stephen Curry skoraði 51 stig í enn einum sigri meistaranna í NBA-deildinni. 4. febrúar 2016 07:15 Mest lesið Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Körfubolti Barði sig til blóðs eftir tap á HM Sport Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Enski boltinn Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Enski boltinn Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít Handbolti Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron Körfubolti „Auðvitað var þetta sjokk“ Körfubolti Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Handbolti „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ Enski boltinn Fleiri fréttir Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna „Get ekki verið fúll út í mína menn“ Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Uppgjörið: KR - ÍR 102-96 | Langþráður KR-sigur ÍA - Stjarnan 85-115 | Meistararnir búnir að finna gírinn Uppgjörið: Valur - Keflavík 111-91 | Valur þurfti ekki að hafa mikið fyrir fimmta sigrinum í röð Uppgjörið: Grindavík - Ármann 105-85| Nýliðarnir létu toppliðið vinna fyrir kaupinu sínu Hafa jafnað við metlið Golden State Warriors Uppgjörið: Njarðvík-Valur 94-90| Frábær endurkomu sigur skilar Njarðvík toppsætinu Stjarnan steig á bensíngjöfina og kláraði Tindastól að lokum Sjá meira
Curry með galdrabrögð gegn töframönnunum | Myndbönd Stephen Curry skoraði 51 stig í enn einum sigri meistaranna í NBA-deildinni. 4. febrúar 2016 07:15