Golden State aftur á sigurbraut | Myndbönd Anton Ingi Leifsson skrifar 21. febrúar 2016 10:56 Curry og félagar gátu leyft sér að fagna í nótt. vísir/getty
Meistararnir í Golden State Warriors komust aftur á sigubraut með sigri á LA Clippers í nótt, 115-112, en í fyrrinótt steinlágu meistararnir fyrir Portland. Þetta var 49. sigur Golden State í vetur í 54 leikjum. Golden State byrjaði mun betur og leiddi með þrettán stigum eftir fyrsta leikhlutann, en Clippers náði að minnka muninn um þrjú stig fyrir hálfleik og staðan 63-53 í hálfleik. Í síðari hálfleik hélst munurnn svipaður, en hægt og rólega náðu heimamenn í Clippers að minnka muninn. Þeir breyttu stöðunni úr 115-99 í 115-112, en nær komust þeir ekki og lokatölur þriggja stiga sigur Warriors, 115-112. Kevin Thompson skoraði 32 stig auk þess sem Draymond Green var með þrefalda tvennu; skoraði átján stig, tók ellefu fráköst og gaf tíu stoðsendingar. Hjá heimamönnum var það Jamal Crawford sem var stigahæstur með 25 stig. Golden State er efst í vesturdeildinni með 90,7% sigurhlutfall sem er það lang mesta í öllum deildunum. LA Clippers er með 65,5% sigurhlutfall eftir sína 55 leiki. Milwaukee hafði sigur á Atlanta í tvíframlengdum leik í Atlanta. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 94-94 og svo var aftur jafnt eftir fyrstu framlenginguna, 105-105. Að endingu höfðu svo gestirnir frá Milwauke sigur, 117-109. New York vann átta stiga sigur á Minnesota, 103-95 og Miami vann 20 stiga sigur á Washington, 94-114. Öll úrslitin og myndbönd frá tilþrifum næturinnar má sjá hér að neðan.Öll úrslit næturinnar: Milwaukee - Atlanta 117-109 Washington - Miami 114-94 New York - Minnesota 103-95 Golden State - LA Clippers 115-112Klay Thompson með sín 32 stig í nótt: Whiteside með góðan leik í nótt: Topp-5 næturinnar
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira