Curry snögghitnaði á ný Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. mars 2016 07:30 Steph Curry í leiknum í nótt. Vísir/Getty
Golden State Warriors er komið aftur á sigurbraut í NBA-deildinni eftir að hafa tapað óvænt fyrir LA Lakers í fyrrakvöld.Sjá einnig: Ótrúlegt en satt | Sjötta tap Golden State kom á móti Lakers Golden State hafði betur gegn Orlando á heimavelli í nótt, 119-113, þar sem hinn magnaði Steph Curry skoraði 41 stig og varð fyrsti maðurinn í sögunni til að skora meira en 300 þriggja stiga körfur á einu tímabili. Síðast þegar liðið mætir Orlando skoraði 51 stig, þar af tíu þrista, en hann var með sjö í nótt í þrettán tilraunum. Hann er nú kominn með alls 301 þriggja stiga körfur þetta tímabilið. Curry tók einnig þrettán fráköst í leiknum í nótt. Golden State bætti einnig met með því að vinna sinn 45. heimaleik í röð en gamla metið átti Chicago Bulls en það var sett árið 1996. Golden State hefur unnið alla 27 heimaleiki sína þetta tímabilið. Klay Thompson skoraði 27 stig fyrir Golden State sem hefur unnið 56 af 62 leikjum sðínum þetta tímabilið. Aaron Gordon var með 20 stig og sextán fráköst fyrir Orlando. Memphis vann óvæntan sigur á Cleveland, 106-103, þrátt fyrir að margir lykilmenn hafi verið frá vegna meiðsla. Tony Allen skoraði 26 stig í leiknum en Vince Carter innsiglaði sigurinn af vítalínunni þegar lítið var eftir. LeBron James var með 28 stig fyrir Cleveland og Kyrie Irving 27 stig. James er nú orðinn þrettándi stigahæsti leikmaður deildarinnar frá upphafi en hann tók fram úr John Havlicek í nótt.Úrslit næturinnar: Charlotte - Minnesota 108-103 Cleveland - Memphis 103-106 Indiana - San Antonio 99-91 Chicgo - Milwaukee 100-90 New Orleans - Sacramento 115-112 Dallas - LA Clippers 90-109 Golden State - Orlando 119-113
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira