Svona gæti Trump valdið kreppu

1. Með því að hefja viðskiptastríð við Kína og Mexíkó
Viðskiptamenn í Bandaríkjunum óttast að Trump muni hefja viðskiptastríð við Kína (auk annarra landa). Hann hefur hótað því að setja skatt á allt að 45 prósent vara frá Kína og Mexíkó. Líklegt er að þjóðirnar svari með því að hækka verð á bandarískum vörum í sínum löndum. Útflutningur telur til þrettán prósent af hagkerfi Bandaríkjanna. Viðskiptastríð gæti stefnt hagvexti í hættu.
2. Trump er ófyrirsjáanlegur
Trump er ófyrirsjáanlegur, hann talar tæpitungulaust og hefur breytt afstöðu sinni á mörgum málaflokkum í kosningabaráttunni. Viðskiptamenn kunna ill við óvissu. Trump gæti því skapað óvissu á mörkuðum.
3. Brottflutningur 11 milljóna
Trump er með áform um að vísa ellefu milljónum óskráðra verkamanna úr landi. Með því myndi íbúum Bandaríkjanna fækka um þrjú prósent. Þetta myndi hafa gríðarleg áhrif á bandaríska hagkerfið þar sem mun færri væru að vinna.
4. Með því að hækka verðlag
Ef Trump setur skatt á kínverskar og mexíkanskar vörur munu þær að sjálfsögðu hækka verulega í verði. Almennar heimilisvörur sem fást í Walmart og Target myndu þá hækka verulega. Þetta myndi hafa gríðarleg áhrif á fjölskyldur úr millistétt, auk þess að draga úr eftirspurn eftir vörum í framtíðinni. Þetta myndi taka sinn toll á hagkerfinu og jafnvel leiða til kreppu.
5. Halli á ríkissjóði
Skattaáform Trump myndu lækka skatta almennings og fyrirtækja á landinu. Þetta myndi skapa fleiri ný störf en auka skuldir bandaríska ríkisins til muna. Tax Policy Center áætlar að skattáform hans myndu hækka skuldir Bandaríkjanna um 9,5 billjónir dollara innan áratugs. Forsvarsmenn telja að áætlanir hans séu ósjálfbærar.
Óvíst er þó hvað Trump mun gera ef hann verður kosinn næsti forseti Bandaríkjanna, hann er einfaldlega of óútreiknanlegur.
Tengdar fréttir

Tugir milljarða til að ná forystu
Dýrkeypt getur verið að komast langt í forsetakosningum í Bandaríkjunum. Clinton og Trump höfðu í lok febrúar varið 17,9 milljörðum króna í sín framboð. Trump varði þó einungis fimmtungi af fjárhæð Clinton. Frambjóðendur sem hætt

Bandaríkjamenn á flótta undan Trump velkomnir til Kanada
Íbúar á kanadísku eyjunni Cape Breton í Nova Scotia hafa svarað kalli Bandaríkjamanna.

Romney segir Trump vera svikara og loddara
Repúblikaninn og fyrrverandi forsetaframbjóðandinn Mitt Romney vandar Donald Trump ekki kveðjurnar.

Trump og Clinton með ótvíræða forystu
Ofurþriðjudagurinn svonefndi skilaði Donald Trump nokkuð öruggu forskoti hjá Repúblikanaflokknum, helstu ráðamönnum flokksins til skelfingar. Hillary Rodham Clinton náði einnig að skjóta Bernie Sanders langt aftur fyrir sig.

Mexíkó harðneitar að borga fyrir landamæravegg
Fjármálaráðherra Mexíkó segir að ríkið muni ekki undir neinum kringumstæðum greiða fyrir þann landamæravegg sem Donald Trump leggur til að verði reistur.