Curry og Thompson sáu um Dallas | Myndbönd Anton Ingi Leifsson skrifar 19. mars 2016 11:00 Leikmenn Golden State voru í stuði í nótt.
Stephen Curry og Klay Thompson fóru báðir á kostum í nótt þegar Golden State Warriors vann enn einn leikinn í NBA-körfuboltanum, en þeir unnu 130-112 sigur á Dallas í nótt. Gífurlega mikið var skorað í leiknum í nótt, en Golden State tók forystuna í fyrsta leikhluta þegar þeir náðu sex stiga forystu, 42-36, en þeir leiddu svo í hálfleik 73-67. Í síðari hálfleik héldu þeir forystunni og unnu að lokum átján stiga sigur í rosalegum stigaleik, 130-112, en þetta var sjöundi sigur Golden State í röð í deildinni. Þeir hafa unnið 62 leiki og einungis tapað sex í vetur, en Dallas hefur tapað 43 leikjum og unnið 25. Thomspon var stigahæstur hjá Golden State með 39 stig, en hinn magnaði Curry kom næstur með 31 stig. Hjá Dallas var Dirk Nowitzki stigahæstur með 24 stig. Stórleikur Victor Oladipo fyrir Orlando Magic dugði ekki til gegn Cleveland Cavaliers i nótt, en Cleveland vann sex stiga sigur í leik liðanna í Orlando. Oladipo lék á alls oddi og skoraði 45 stig, en Kyle Irving var stigahæstur hjá gestunum með 26 stig. Cleveland hefur þegar tryggt sig inn í úrslitakeppnina, en þeir hafa unnið 49 leiki í vetur og eru með 72,1% sigurhlutfall. Orlando er með 42,6% sigurhlutfall, en þeir hafa tapað 39 leikjum af þeim 68 sem þeir hafa spilað. James Harden var í lykilhluti hjá Houston einu sinni sem oftar, en hann skoraði 29 stig og gaf 14 stoðsendingar í fimm stiga sigri Houston á Minnesota 116-111. Houston er með 50,7% sigurhlutfall í vetur, en Minnesota er með 31,9%.Öll úrslit næturinnar: Cleveland - Orlando 109-103 Oklahoma - Philadelphia 111-97 Sacramento - Detroit 108-115 Boston - Toronto 91-105 Portland - New Orleans 117-112 Minnesota - Houston 111-116 Golden State - Dallas 130-112 Phoenix - LA Lakers 95-90Falleg tilþrif hjá Curry: Topp-10 næturinnar: Veislan hjá Oladipo í nótt: 'Buzzer' frá Curry:
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira