Kveðja, Kobe Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2016 06:30 Kobe kvaddi í nótt. vísir/getty
Eftir tuttugu ár, 1.346 leiki, fimm titla og yfir 33 þúsund stig, þá lauk NBA-ferli bandaríska körfuboltamannsins Kobe Bryant í Los Angeles í nótt. Síðasti leikurinn var á móti Utah Jazz og skipti lið hans engu máli en þannig hefur þetta nú verið í vetur. Leikir Lakers hafa snúist um kveðjuferð Kobe um Bandaríkin en sigrarnir og aðallega tapleikirnir hafa verið verið hálfgert aukaatriði. Átrúnaðargoð Kobe Bryant var Michael Jordan og þeir eru alltaf bornir mikið saman enda að mörgu leiti mjög líkir leikmenn. Það er erfiðara að finna meiri keppnismenn og báðir áttu stórkostlega ferla í NBA. Kobe náði að skora meira en Jordan á ferlinum en náði ekki að jafna titlafjöldann sem mun eflaust plaga hann um ókomna tíð. Þrettándi apríl 2016 verður nú skráður í sögubækur Los Angeles Lakers enda hefur enginn leikmaður spilað fleiri leiki eða skorað fleiri stig fyrir félagið en Kobe Bryant, hvort sem er í deild eða úrslitakeppni. Hann hefur komið sér vel fyrir um alla metabók Los Angeles Lakers – og það er ekki eins og einhverjir meðalmenn hafi verið að spila með þessu sigursæla NBA-liði í gegnum tíðina. Það eru samt fleiri dagar sem standa upp úr á þessum frábæra ferli og á þessari síðu förum við yfir nokkra þeirra. Það var af nógu að taka og því komust ekki nærri því allar stærstu stundir Kobe fyrir.
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira