Elsti markakóngur ítölsku deildarinnar segir bless Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2016 16:00 Luca Toni þakkar hér Emil fyrir eina af stoðsendingunum á síðasta tímabili. Vísir/Getty
Luca Toni, framherji Hellas Verona, hefur nú gefið það út að leikurinn á móti Juventus á sunnudaginn verði hans síðasti á ferlinum. Luca Toni verður 39 ára gamall í lok maí en hann er fæddur 26. maí 1977 og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir meira en tuttugu árum síðan. Luca Toni varð heimsmeistari með ítalska landsliðinu 2006 en hann lék sinn síðasta landsleik árið 2009. Alls gerði hann 16 mörk í 47 leikjum fyrir Ítalíu. Luca Toni lék alls fyrir átta félög í ítölsku A-deildinni og hefur samtals skorað 156 mörk í 343 leikjum í deildinni. Luca Toni endurskrifaði söguna á síðasta tímabili þegar hann skorað 22 mörk fyrir Hellas Verona 38 ára gamall og varð elsti markakóngur ítölsku deildarinnar frá upphafi. Luca Toni skoraði mörk af þessum mörkum eftir stoðsendingar frá íslenska landsliðsmanninum Emil Hallfreðssyni. Luca Toni varð markahæsti leikmaður þýsku deildarinnar 2007-08 þegar hann skoraði 24 mörk fyrir Bayern München en tímabilið 2005-06 fékk hann gullskó Evrópu fyrir að skora 31 mark í 38 leikjum fyrir Fiorentina. Luca Toni náði aldrei að vinna ítölsku A-deildina á sínum ferli en vann B-deildina með Palermo 2004 og þýsku deildina með Bayern München 2008 og 2010.
Ítalski boltinn Mest lesið „Maður fær bara hnút í magann að koma hingað inn“ Körfubolti Æfur yfir sniðgöngunni: „Að mínu mati er þetta skandall“ Sport Reynir að halda fókus á meðan Snorri gasar Handbolti Lið Jóhanns Berg kært til FIFA Fótbolti Valdi Ísland ekki Danmörku: „Snerist um hvað mig langaði mest að gera“ Fótbolti Hentu yfir hundrað þúsund böngsum inn á völlinn Sport Situr inni með morðingjum og misyndismönnum í fangelsi hinna frægu Fótbolti Sjóðheitur Gunnlaugur tryggði Evrópu einn sigur Golf Man United goðsögnin mjög ósátt: Hafa ekki gert neitt jákvætt Enski boltinn Kennir boltanum um slaka færanýtingu Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Lið Jóhanns Berg kært til FIFA Rekinn frá West Ham og Potter að taka við Ronaldo hvetur Al-Nassr til að kaupa Casemiro Zidane líklegastur til að taka við af Deschamps Rosický gæti snúið aftur til Arsenal Situr inni með morðingjum og misyndismönnum í fangelsi hinna frægu Hjörtur þriðji úr vörn landsliðsins í Grikklandi Sjáðu mörk Newcastle gegn Arsenal „Jafnvel Salah væri í vandræðum hjá Tottenham“ Kennir boltanum um slaka færanýtingu Arsenal Valdi Ísland ekki Danmörku: „Snerist um hvað mig langaði mest að gera“ Man United goðsögnin mjög ósátt: Hafa ekki gert neitt jákvætt Deschamps hættir með Frakka eftir HM 2026 Newcastle með manninn sem Arsenal vantar Kaupir ný gleraugu á öryggisvörðinn og fær styttra leikbann Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Chelsea vill fá Guehi aftur Elfsborg að kaupa Júlíus Magnússon Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Son framlengir við Spurs Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun West Ham búið að bjóða Potter starfið Orðaður við íslenska landsliðið en þykir líklegur til að taka við Molde „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ Segir fótboltaguðina á móti Luton Milan og Juventus ásælast framherja United Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Messi skrópaði í Hvíta húsið Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Mo Salah skýtur á Carragher Sjá meira