Arkitekt sjö sekúndna sóknarinnar að taka við Houston Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. maí 2016 13:30 D'Antoni er mikill sóknargúrú. vísir/getty
Fjölmiðlar vestanhafs greina frá því að Mike D'Antoni verði næsti þjálfari NBA-liðsins Houston Rockets. Houston gekk ekki vel í vetur og endaði í 8. sæti Vesturdeildarinnar en liðið vann helming leikja sinna í deildakeppninni. Houston tapaði svo 4-1 fyrir Golden State í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Kevin McHale stýrði Houston í byrjun tímabilsins en var látinn taka pokann sinn í nóvember. J.B. Bickerstaff tók við starfi hans og stýrði liðinu út tímabilið. D'Antoni, sem er 65 ára, býr yfir mikilli reynslu en Houston verður fimmta liðið sem hann stýrir í NBA. D'Antoni er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Phoenix Suns sem hann stýrði á árunum 2003-08. Undir stjórn D'Antonis spilaði Phoenix mjög hraðan og skemmtilegan bolta sem skilaði fínum árangri. Phoenix komst tvívegis í úrslit Vesturdeildarinnar á meðan D'Antoni var við stjórnvölinn en liðið tapaði fyrir San Antonio Spurs 2005 og Dallas Mavericks ári seinna. Eftir að D'Antoni yfirgaf Phoenix stýrði hann New York Knicks og Los Angeles Lakers með misjöfnum árangri. Í vetur var D'Antoni svo aðstoðarþjálfari hjá Philadelphia 76ers.
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira