Bakvarðapar Toronto frábært og Toronto búið að jafna gegn Cleveland | Myndbönd Tómas Þór Þóraðrson skrifar 24. maí 2016 07:10
Toronto Raptors er svo sannarlega ekki búið að gefast upp í úrslitaeinvígi austurdeildar NBA eins og einhverjir kannski héldu en liðið jafnaði rimmuna gegn Cleveland Cavaliers í nótt með sex stiga sigri á heimavelli, 105-99. Toronto átti varla möguleika í Cleveland í fyrstu tveimur leikjunum á útivelli en liðið sýndi mikinn styrk í síðustu tveimur leikjum og er búið að gera einvígið heldur betur spennandi. Bakvarðaparið magnaða hjá Raptors; Kyle Lowry og DeMar DeRozaz, var alveg frábært í leiknum en saman skoruðu þeir félagarnir 67 stig af 105 stigum Toronto. Lowry var stigahæstur með 35 stig og DeRozan skoraði 32 en Bismack Biyombo skoraði fimm stig og tók fjórtán fráköst. Hann er smám saman að verða ein af stjörnum þessarar úrslitakeppni. LeBron James var stigahæstur Cleveland með 29 stig auk þess sem hann tók níu fráköst og gaf sex stoðsendingar en Kyrie Irving skoraði 26 stig og gaf sex stoðsendingar. Næsti leikur fer fram í Cleveland en liðin skiptast nú á heimaleikjum í næstu þremur leikjum. Toronto er búið að tapa öllum þremur leikjum sínum í Cleveland á tímabilinu með samtals 72 stigum. Það er 2-6 á útivelli í úrslitakeppninni en verður að fara að stela sigri á útivelli ætli það sér í úrslitarimmuna. Í spilaranum hér að ofan má sjá Lowry og DeRozan fara á kostum en hér að neðan er glæsileg vörn Biscmack Biyombo.
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira