Arnór Ingvi: Felldi gleðitár þegar skilaboðin komu Anton Ingi Leifsson skrifar 20. maí 2016 22:00
Arnór Ingvi Traustason, leikmaður íslenska landsliðsins, segir að hann hafi fellt nokkur gleðitár þegar honum var tilkynnt að hann væri í íslenska landsliðshópnum fyrir EM í Frakklandi í sumar. „Þetta er búið að vera þokkalega fínar vikur. Ég get ekki kvartað. Það skemmir ekki fyrir að hafa verið valinn í landsliðið," sagði Arnór Ingvi í samtali við Hjört Hjartarson í Akraborginni. „Ég var ekkert að hugsa mikið út í þetta (landsliðsvalið) eftir tímabilið með Norrköping í fyrra. Ég hélt ég myndi kannski fá einn til tvo leiki til að spreyta mig aðeins sem ég fékk í nóvember, janúar og í mars." „Í mars var ég að hugsa að ég ætti alveg séns og afhverju ekki bara að taka hann? Svo reyndi ég að fókusa á aðra hluti fram af þessum degi, en það var mjög erfitt að fókusa á fréttamannafundinn þennan dag sem liðið var tilkynnt." „Síðan fékk ég skilaboð og ég get alveg viðurkennt það að það komu nokkur gleðitár," sagði Arnór Ingvi glaður í bragði. Leikmenn liðsins fengu tilkynningu 45 mínútum fyrir fréttamannafund, en Arnór segir að þessi skilaboð hafi bjargað deginum. Arnór Ingvi gekk í raðir Rapid Vín á dögunum og hann er spenntur fyrir vistaskiptunum yfir til Austurríkis. „Þeir byrja að fylgjast með mér í enda síðasta tímabils. Þeir horfðu þá á þrjá leiki og byrjuðu með fyrsta boð í janúar. Ég neitaði því og vildi sjálfur vera áfram í Norrköping." Allt innslagið má hlusta í heild sinni hér að ofan.
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira