Verslun jókst á milli ára í öllum flokkum smásöluverslunar Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 16. júní 2016 08:13 Verslun er blómleg. Vísir/RVK „
Velta jókst í öllum flokkum Smásöluvísitölunnar í maí mælt á föstu verðlagi. Dagvöruverslun í maí var 4,1 prósent meiri en í sama mánuði í fyrra en einnig var töluverður veltuvöxtur í flokkum varanlegra neysluvara. Sem dæmi jókst húsgagnaverslun um 18 prósent og byggingavöruverslun um 22 prósent, verslun með raftæki jókst einnig nokkuð.“ Þetta segir í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Kaup og sala á dagvöru sveiflast jafnan ekki mikið. Veltan hefur þó verið nokkuð lífleg undanfarin misseri. Þó verður að líta til þess að eins og segir hér að ofan jókst dagvöruverslun í maí um 4,1 prósent milli ára en fimm föstudagar og laugardagar voru í maí í fyrra en aðeins fjórir í ár. „Ef tekið er tilllit til árstíðabundinna þátta og vikudagaáhrifa jókst velta dagvöruverslunar því meira, eða um 5,9% frá maí 2015 á föstu verðlagi.“Byggingarvöruverslun blómleg Vísitala byggingarverslunar í maí hefur aldrei verið hærri, eða ekki frá því að flokknum var bætt inn í Smásöluvísitöluna hvort sem hún er mæld á föstu eða breytilegu verðlagi. „Þannig var velta byggingavöruverslunar í maí 6,6 prósent hærri en í fyrra hámarki sínu í júlí 2015 á breytilegu verðlagi. Verslun með byggingavörur var 22 prósent meiri en í maí í fyrra á föstu verðlagi en 23,7 prósent meiri á breytilegu verðlagi. Verðlag byggingavara hefur á sama tíma hækkað um 1,6 prósent.“ Skóverslun minnkaði um 7,2 prósent frá maí í fyrra en jókst um 0,6 prósent á föstu verðlagi. Þannig er nokkur munur á því hvort miðað sé við fast verðlag eða breytilegt. „Þó verslun með fatnað og skó hafi aukist lítillega frá maí 2015 á föstu verðlagi dregst velta flokkanna saman á breytilegu verðlagi. Velta fataverslana dróst saman um hálft prósent á breytilegu verðlagi frá maí í fyrra en jókst um 2,9% á föstu verðlagi. Skóverslun minnkaði um 7,2% frá maí í fyrra en jókst um 0,6% á föstu verðlagi. Samkvæmt verðlagsmælingu Hagstofunnar var verðlag fatnaðar í maí síðastliðnum 3,1% lægra en í maí 2015 og verðlag skófatnaðar 7,6% lægra en á sama tíma í fyrra.“ Húsgagnaverslun hefur verið með öflugasta móti á árinu. En hún jókst um 18,3 prósent á milli ára. Ef síðustu sex mánuðir eru bornir saman við sama tímabil ári áður er aukningin um 27%. „Á sama tímabili hefur verðlag nær staðið í stað.“
Mest lesið Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Milljónagreiðslur til Baldvins Jónssonar stöðvaðar Viðskipti innlent Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Atvinnulíf Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Viðskipti innlent Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Viðskipti erlent „Algjört siðleysi“ Neytendur Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Sjá meira