Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. janúar 2026 07:02 Sambíóin hafa verið í Álfabakka í Mjódd í fjóra áratugi en í lok janúar flytur keðjan úr húsinu. Vísir/Vilhelm Viðskiptavinir Sambíóanna borga nú 120 krónur aukalega panti þeir bíómiða í gegnum vefsíðu bíóhúsanna. Gjaldið er nefnt úrvinnslugjald en framkvæmdastjóri segir gjaldinu ætlað að koma til móts við aukinn kostnað meðal annars vegna reksturs og viðhalds miðasölukerfa. Það geri Sambíóunum kleyft að halda miðaverði stöðugu.
Það var viðskiptavinur Sambíóanna sem vakti athygli fréttastofu á hinu nýja gjaldi. Bíómiði kostar nú 2350 krónur en nú bætist við svokallað úrvinnslugjald, 120 krónur þannig að samtals kostar þá 2470 krónur í bíó sé pantaður miði í gegnum netið. Til samanburðar kostar miði í Smárabíó nú 2440 krónur og 2350 krónur í Laugarásbíó miðað við vefsíður kvikmyndahúsanna. Björn Á. Árnason framkvæmda og fjármálastjóri Samfilm segir í skriflegu svari til Vísis að gjaldið sé tekið upp hérlendis mörgum árum eftir að það hafi verið gert í öðrum löndum. Líkt og áður hefur komið fram munu Sambíóin í Álfabakka loka dyrum sínum í síðasta sinn í janúar en rekstraraðilar hafa sagt rekstri kvikmyndahúsanna áfram sinnt af fullum krafti bæði í Kringlunni og Egilshöll, sem og á Akureyri. Kostnaður hafi aukist „Þetta gjald, sem nefnist “booking fee” í enskumælandi löndum, er aðallega hugsað sem þjónustugjald sem stendur undir kostnaði við rafræna miðasölu. Eftir tilkomu netmiðasölu hefur kostnaður vegna greiðslugjalda, rekstur og viðhald miðasölukerfa, tæknilausnir og þjónusta sem tryggir örugga og þægilega netbókun aukist töluvert og er þetta gjald ætlað til að koma á móts við þann kostnað. Þetta gjald er utan tekjuskiptingar við dreifiaðila (studíóin) og hjálpar okkur að halda miðaverði stöðugu.“ Athygli vekur að tvær útgáfu af vefsíðu Sambíóanna eru í loftinu þegar fréttin er skrifuð. Ný útgáfa var gefin út í fyrra til prufu en noti viðskiptavinir þá gömlu þá rukkast hið nýja 120 króna gjald ekki með bíómiðanum. Björn segir um að ræða mistök af hálfu erlends fyrirtækis sem sjái um miðasölukerfi Sambíóanna og vefsíður. „Þetta gjald var sett á núna rétt fyrir jól og á sama tíma og þeir settu það inn áttu þeir að loka eldri síðunni en gerðu það ekki (af einhverri ástæðu), fóru svo í jólafrí.Skilst að þeir séu að detta inn í dag eða á morgun og mun þá eldri síðunni vera lokað.“
Neytendur Kvikmyndahús Mest lesið Loka Duck & Rose á sunnudaginn Viðskipti innlent Funda um stofnun innlendrar greiðslumiðlunar Viðskipti erlent „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Viðskipti innlent Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Viðskipti innlent ESB hefur rannsókn á söluháttum Shein og ólöglegum varningi Viðskipti erlent Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Viðskipti innlent Kanna hvort klámfengnar myndir Musk hafi brotið persónuverndarlög Viðskipti erlent Eldjárn kaupir Tölvutek ásamt lykilstarfsmönnum Viðskipti innlent Vann hjá Amazon, með áhyggjur af Trump, reynslu af Rússum en kominn heim Atvinnulíf Erla Ósk nýr formaður Jafnvægisvogarráðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Íslenska ánægjuvogin: Viðskiptavinir Indó og miðaldra konur ánægðust Vara við súkkulaðirúsínum Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman „Algjört siðleysi“ Boðar aðgerðir til að koma reglu á „gjaldskyldufrumskóg“ Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Segir leigusala hækka leigu í takt við skerðingu Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur eigi meira inni Costco lækkaði í morgun og bætti svo í Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Sjá meira