Háskerpustöðvar verða sjálfvirkt fyrsta val hjá Vodafone Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 15. júní 2016 08:38 Háskerpa fyrsta val eftir daginn í dag. Vísir/GETTY
Vodafone sjónvarp hefur ákveðið að gera háskerpuútgáfu sjónvarpsstöðva að aðalstöðvum viðskiptavina og færa þær því fremst í stöðvalista. Áður var háskerpa aftarlega í stöðvalistanum og sjálfkrafa fyrsta val í raun venjubundnar útsendingar. Breytingin tekur gildi í dag eins og fram kemur í tilkynningu frá Vodafone. Fjölgun verður á háskerpustöðvum og breyting á stöðvauppröðun. „Háskerpustöðvum í Vodafone Sjónvarpi hefur fjölgað hratt undanfarið og eru þær nú yfir 30 talsins,“ segir í tilkynningu.Vodafone gerir háskerpu að sjálfvirku fyrsta vali.Fréttablaðið/Daníel„Frá og með deginum í dag eru háskerpustöðvar í forgangi í Vodafone Sjónvarpi, með því að háskerpuútgáfur sjónvarpsstöðva á borð við RÚV, Stöð 2 og Sjónvarp Símans færast fremst í stöðvalista viðskiptavina. Samhliða þessum breytingum hefja þrjár íslenskar sjónvarpsstöðvar háskerpuútsendingar í fyrsta sinn – stöðvarnar N4, Stöð 3 og Bíóstöðin auk aukins framboðs erlendra stöðva í háskerpu eins og Eurosport, Discovery og BBC stöðvarnar. Alls eru nú yfir 30 stöðvar sendar út í háskerpu í Vodafone Sjónvarpi. Kapp hefur verið lagt á að ná þessari breytingu í gegn enda eru gæði útsendinga mikilvæg ekki síst þegar kemur að stórviðburðum á íþróttasviðinu eins og Evrópukeppninni í knattspyrnu og Ólympíuleikunum.“ Björn Víglundsson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustu, lætur hafa eftir sér í tilkynningu að viðskiptavinir kunni að meta aukin gæði og hvetur því aðrar fjölmiðlaveitur til að gera samskonar breytingar á sínu kerfi. „Vodafone Sjónvarp verður nú fyrst og fremst í háskerpu. Markmiðið með þessari breytingu er að skila viðskiptavinum enn betri upplifun í sjónvarpsþjónustu – þar sem gæði háskerpuútsendinga verða nú sett í forgang. Til að virkja breytinguna nú þurfa viðskiptavinir í raun ekkert að gera, nema bara kveikja á tækinu til að njóta leikja Íslands á EM eða annarrar sjónvarpsafþreyingar – í háskerpugæðum,“ er haft eftir Birni í tilkynningu.
Mest lesið Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Slúbbertar og enn verri sögur, afreksfólk og ástin Atvinnulíf Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf 996 vinnuvikan að ryðja sér til rúms á ný (72 klukkustundir) Atvinnulíf Fleiri fréttir Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Sjá meira