Nótt Thorberg framkvæmdastjóri Marel á Íslandi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. júní 2016 12:18 Nótt Thorberg.
Nótt Thorberg hefur tekið við nýju starfi framkvæmdastjóra Marel á Íslandi. Framkvæmdastjórinn verður ábyrgur fyrir starfsemi Marel á Íslandi þegar kemur að innleiðingu á stefnu og rekstrarmarkmiðum í samstarfi við iðnað og alþjóðleg stoðsvið félagsins, að því er fram kemur í tilkynningu. Nótt hefur undanfarna níu mánuði verið í fæðingarorlofi en frá árinu 2012 hafði hún starfað sem markaðsstjóri Marel á Íslandi með áherslu á ímynd og markaðsstarf félagsins hér á landi. Nótt er formaður Stjórnvísis, situr í stjórn Íslensku ánægjuvogarinnar og er á meðal stofnenda félagsins Konur í sjávarútvegi. Hún útskrifaðist með M.Sc. gráðu í markaðsmálum frá the University of Strathclyde í Skotlandi árið 2009 og hefur lokið tveimur diplómagráðum á vegum the Chartered Institute of Marketing. „Marel er í fararbroddi á heimsvísu hvað varðar þróun hátæknibúnaðar og kerfa til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Félagið er með starfsstöðvar í 30 löndum um heim allan og eru starfsmenn um 4.600. Á Íslandi starfa um 550 manns við nýsköpun, framleiðslu, sölu og þjónustu. Marel er skráð á Nasdaq OMX hlutabréfamarkaðinn á Íslandi og eru höfuðstöðvar félagsins hér á landi ásamt því að hluti yfirstjórnar og alþjóðlegra stoðsviða félagsins eru hér á landi,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. „Hjá Marel á Íslandi starfar samhentur og fjölbreyttur hópur fólks sem leggur metnað í störf sín alla daga. Ég hlakka til að fóstra starfsstöðina á Íslandi með stefnu Marel og hagsmunaaðila að leiðarljósi,“ er haft eftir Nótt í tilkynningu.
Mest lesið Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Milljónagreiðslur til Baldvins Jónssonar stöðvaðar Viðskipti innlent Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Atvinnulíf Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Viðskipti innlent Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Viðskipti erlent „Algjört siðleysi“ Neytendur Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Sjá meira