Ótrúleg heimska leikmanns Bandaríkjanna: Fékk tvö gul spjöld með mínútu millibili | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. júní 2016 12:26
DeAndre Yedlin, leikmaður bandaríska landsliðsins, kom sínum mönnum í mikil vandræði þegar hann fékk að líta tvö gul spjöld á mettíma í upphafi seinni hálfleiks í leik gegn Paragvæ í A-riðli Copa América í gærkvöldi. Clint Dempsey kom Bandaríkjunum í 1-0 á 27. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Strax eftir rúma mínútu í seinni hálfleik fékk Yedlin, sem leikur með enska úrvalsdeildarliðinu Sunderland, gula spjaldið fyrir brot á Miguel Almíron. En Yedlin var hvergi nærri hættur. Paragvæar tóku aukaspyrnuna og eftir nokkrar sendingar straujaði Yedlin Miguel Samudio niður. Síleski dómarinn Julio Bascunan átti engra annarra kosta völ en að lyfta gula spjaldinu öðru sinni og reka Yedlin af velli. Ótrúleg framganga hjá Yedlin sem setti eflaust eitthvað met því að fá tvö gul spjöld með um mínútu millibili. Brottvísunin breytti þó engu um úrslitin því einum færri héldu Bandaríkjamenn út og tryggðu sér ekki bara sæti í 8-liða úrslitum Copa América heldur einnig sigur í A-riðli.Gulu spjöldin tvö sem Yedlin fékk má sjá í spilaranum hér að ofan.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Sport Fleiri fréttir Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Sjá meira