Starfsmaður Hótel Keflavík níddi Flughótel á netinu Samúel Karl Ólason skrifar 10. júní 2016 10:11 Vísir/GVA
Neytendastofa hefur sektað Hótal Keflavík um 250 þúsund krónur. Það var gert eftir að starfsmaður hótelsins skrifaði neikvæðar umsagnir um Flughótel Keflavík á bókunarvefsíðu. Neytendastofa taldi að um óréttmæta og villandi viðskiptahætti væri að ræða.Samkvæmt ákvörðun Neytendastofu komu óvenjulega margar slæmar athugasemdir inn á svæði Flughótels í lok maí í fyrra. Skömmu áður hafði starfsmaður hótelsins bókað gistingu á Flughótel fyrir nokkra gesti vegna plássleysis. Minnst átta mjög slæmar athugasemdir höfðu borist frá netfangi starfsmanns hótelsins sem bókaði gistingu á Flughótel fyrir áðurnefnda gesti. Allar athugasemdirnar höfðu formerkinguna „Would not recomment this product“ og var aðbúnaði og þjónustu Flughótels lýst á slæman hátt. Neytendastofa bendir á að umsagnir á bókunarvefnum eru eingöngu ætlaðar viðskiptavinum fyrirtækja en ekki keppinautum. Þeim sé ætlað að endurspegla reynslu viðskiptavina af þjónustunni. Áðurnefndum athugasemdum hafi verið ætlað að hafa áhrif á eftirspurn þjónustu keppinautar. Því var Hótel Keflavík sektað um 250 þúsund krónur. Þó kemur fram í ákvörðuninni að Hótel Keflavík hafi brugðist við og gert ráðstafanir til þess að þetta muni ekki gerast aftur af hálfu hótelsins eða starfsmanna þess.
Mest lesið Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Milljónagreiðslur til Baldvins Jónssonar stöðvaðar Viðskipti innlent Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Atvinnulíf Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Viðskipti innlent Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Viðskipti erlent „Algjört siðleysi“ Neytendur Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Sjá meira