Bandarísk kvikmyndaver hafa mikið horft til Bretlands þegar kemur að upptökum á stórmyndum og hafa nýjustu Star Wars-myndirnar, sú sjöunda í röðinni og Rogue One, verið teknar upp þar ásamt Prometheus og Marvel-myndum á borð við Captain America: Civil War, Captain America: Winter Soldierog Thor: The Dark World, svo dæmi séu tekin.

„Það er líklegra að einhverjar tökur komi til Íslands ef verið er að vinna myndina í Bretlandi heldur en í Ameríku, það hjálpar að það gangi vel í Bretlandi að mínum dómi,“ segir Baltasar.
Breska ríkið endurgreiðir 25 prósent af þeim framleiðslukostnaði sem verður til við kvikmyndagerð þar í landi og hefur það verið eitt helsta aðdráttaraflið fyrir Hollywood. Greint er frá því í Hollywood Reporter að það sé ein af ástæðunum fyrir því að Disney ákvað að taka Star Wars-myndirnar þar og einnig Marvel-myndir.
Hollywood Reporter segir að nú sé talað um hvort þessi endurgreiðsla geti átt sér stað eftir að Bretar völdu að yfirgefa Evrópusambandið. „Það veltur allt á samningum sem Bretland gerir við Evrópusambandið við útgöngu,“ segir í grein Hollywood Reporter.
Kollegarnir miður sín
Umfjöllun fjölmiðla ytra um áhrif útgöngu Breta úr Evrópusambandið á kvikmyndagerð þar í landi er þó flest á þann veg að mikil óvissa sé í raun um það og tekur Baltasar undir það.
„Ég hef heyrt í kollegum mínum úti sem eru alveg miður sín yfir þessu. Það er mikið sjokk fyrir aðila sem eru í „international-bransanum“ sem ég er að vinna með sem eru að framleiða þessar stóru myndir í Bretlandi. Það er okkur í hag að það sé mikið að gera í Bretlandi,“ segir Baltasar.
Aðallega leiðinlegt fyrir ungt fólk
Hann segist ekki vera áhyggjufullur um horfurnar en finnst þetta aðallega leiðinlegt gagnvart ungu fólki því þetta sé mikið afturhvarf til þess ástands sem ríkti í Bretlandi fyrir þrjátíu árum
„Þegar maður þurfti að fá atvinnuleyfi í Bretlandi og þetta var allt lokað og Bretland var bara glatað á þeim tíma. Nú kemur maður til London og þetta er skemmtilegasta borg í heimi því hún er opin og það er mikið af fólki alls staðar frá þarna og þetta er suðupottur menningar,“ segir Baltasar en íbúar London kusu einmitt að vera áfram en ungt og menntað fólk valdi fremur að vera áfram í Evrópusambandinu í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu.

Breskir kvikmyndagerðamenn hvöttu þjóðina til að vera áfram
Fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í síðustu viku hvöttu breskir kvikmyndagerðarmenn bresku þjóðina til að vera áfram í Evrópusambandinu, þar á meðal Barbara Broccoli og Michael G. Wilson, sem framleiða James Bond-myndirnar, Iain Canning framleiðandi The King´s Speech, Matthew Vaugn, leikstjóri X-Men: First Class, Kingsman: The Secret Service, Stardust og Kick-Ass, og Elizabeth Karlsen framleiðandi Carol.
Í maí síðastliðnum skrifuðu 250 aðilar undir ástarbréf til bresku þjóðarinnar, þeirra á meðal leikararnir Patrick Stewart, Benedict Cumberbatch, Chiwetel Ejiofor, Keira Knightley, Jude Law og leikstjórinn Steve McQueen, þar sem hún var hvatt til að kjósa áframhaldandi veru í Evrópusambandinu.
Þá hafði fyrrverandi þáttastjórnandi Top Gear, Jeremy Clarkson, þetta að segja um málið: „Það er stórfurðulegt að við James May (einn af þáttastjórnendum Top Gear) erum einungis sammála um þrennt: Hvernig er besta að smyrja samloku, gamli Subaru Legacy Outback er góður bíll og Bretlandi eigi að vera áfram í Evrópusambandinu.“
Michael Caine og John Cleese ekki hrifnir af ESB
Á hinum endanum eru leikararnir Michael Caine og John Clesse sem töluðu fyrir því að Bretland ætti að fara úr Evrópusambandinu. Caine sagði landið vera betur sett ef því er ekki stjórnað af þúsund andlitslausra embættismanna og sagði Cleese slíkt fyrirkomulag draga úr pólitískri ábyrgð.