Yfir 1600 tilboð bárust í gjaldeyrisútboði Seðlabankans Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. júní 2016 18:31 Már Guðmundsson seðlabankastjóri. vísir/vilhelm
Rúmlega 98 prósent af þeim tilboðum sem bárust Seðlabanka Íslands í aflandskrónuútboði fram fór 16. júní síðastliðinn var tekið. Útboðið er liður í losun fjármagnshafta. Í tilkynningu sem Seðlabankinn sendi frá sér nú undir kvöld segir að bankinn hafi ákveðið að taka öllum tilboðum sem bárust á genginu 190 krónur á hverja evru eða lægra. Með fyrirvara um endanlegt uppgjör bárust alls 1.646 tilboð og var 1.619 tilboðum tekið. Fjárhæð samþykktra tilboða nam rúmlega 72 milljörðum króna af tæplega 178 milljörðum króna sem boðnar voru í útboðinu. Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands minnkar um rúmlega 47 milljarða í kjölfar útboðsins. Seðlabanki Íslands hefur ákveðið í framhaldi af þessari niðurstöðu að bjóðast til að kaupa á útboðsgenginu 190 krónur á hverja evru aflandskrónaeignir sem ekki voru seldar í útboðinu. Bankinn fer fram á að óskir um viðskipti berist Seðlabanka Íslands í gegnum milligönguaðila fyrir klukkan 10 næsta mánudag. Þá segir að endanlegar tölur um niðurstöðu gjaldeyrisútboðsins 16. júní síðastliðinn að teknu tilliti til viðskipta sem til kann að stofnast á grundvelli fyrrgreindrar ákvörðunar verða birtar að afloknu uppgjöri viðskipta 29. júní 2016. Uppgjör viðskipta á grundvelli tilboðs Seðlabanka Íslands sem getið er um hér að framan fer fram sama dag. Útboðið 16. júní 2016 var hið síðasta í röð tuttugu og þriggja útboða þar sem eigendum aflandskróna var boðið að kaupa erlendan gjaldeyri áður en stjórnvöld hefja losun fjármagnshafta á innlenda aðila, þ.e. á lífeyrissjóði, aðra lögaðila og einstaklinga.
Mest lesið Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Milljónagreiðslur til Baldvins Jónssonar stöðvaðar Viðskipti innlent Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Atvinnulíf Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Viðskipti innlent Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Viðskipti erlent „Algjört siðleysi“ Neytendur Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Sjá meira