Kortavelta ferðamanna 20 milljarðar í maí sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 20. júní 2016 08:46 Um er að ræða 51,4 prósenta aukningu frá sama tíma í fyrra þegar kortaveltan var þrettán milljarðar króna. vísir/ernir
Erlend greiðslukortavelta nam tæpum tuttugu milljörðum króna í maí síðastliðnum. Um er að ræða 51,4 prósenta aukningu frá sama tíma í fyrra þegar hún var þrettán milljarðar króna. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Kortavelta ferðamanna jókst á milli ára í öllum útgjaldaliðum í maí. Erlendir ferðamenn greiddu tæpar 600 milljónir með kortum sínum til dagvöruverslana í maí, um 81 prósent meira en í maí í fyrra en erlend kortavelta í dagvöruverslun hefur fjórfaldast á síðustu fjórum árum. Kortavelta erlendra ferðamanna í verslun jókst um tæp 41 prósent milli ára en það sem af er árinu hafa erlendir ferðamenn greitt 8,2 milljarða í verslun með kortum sínum. Mestur vöxtur var í flugferðum, um 146 prósent, og er maí sjöundi mánuðurinn í röð þar sem greiðslukortavelta vegna flugferða meira en tvöfaldast frá fyrra ári. Hluti þeirrar greiðslukortaveltu sem fellur undir þennan lið er greiðsla fyrir þjónustu sem innt er af hendi utan landsteinanna. Þá var töluverð aukning í kortaveltu ferðamanna til bílaleiga og greiddu ferðamenn í maí rúmlega 1,8 milljarða fyrir bílaleigubíla. Það er um 43 prósenta aukning frá sama mánuði í fyrra. Það sem af er ári hafa ferðamenn eytt um sex milljörðum í bílaleigubíla. Í maí komu um 124 þúsund ferðamenn til landsins um Leifsstöð samkvæmt talningu Ferðamálastofu, 37 prósent fleiri en í sama mánuði í fyrra.
Mest lesið Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Slúbbertar og enn verri sögur, afreksfólk og ástin Atvinnulíf Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf 996 vinnuvikan að ryðja sér til rúms á ný (72 klukkustundir) Atvinnulíf Fleiri fréttir Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Sjá meira