Trump ákveður loks að lýsa yfir stuðningi við helstu þungavigtarmenn Repúblikana Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 6. ágúst 2016 11:30 Trump hafðii áður neitað að styðja Paul Ryan og John McCain. Vísir/EPA
Donald Trump, forsetaefni Repúblikana, hefur loksins ákveðið að styðja framboð Paul Ryan, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings til endurkjörs. Hafði hann áður neitað að styðja framboð Ryan. Það kom flokksmönnum Repúblikana verulega á óvart í vikunni þegar Trump neitaði að styðja framboð Ryan og John McCain, öldungardeildarþingmanns, til endurkjörs en kosið verður til hluta þingsæta Bandaríkjaþings samhliða forsetakosningunum í nóvember. Ryan, sem er æðsti kjörni fulltrúi Repúblikanaflokksins og McCain, sem var frambjóðandi flokksins í forsetakosningunum 2008 eru jafnan taldir helstu þungavigtarmenn flokksins. Það að Trump hafi neitað að styðja þá var talið vera til marks um deilur í efsta lagi flokksins en í gær gaf Trump út opinbera stuðningsyfirlýsingu við McCain og Ryan. Hafa verður þó í huga að Ryan vildi sjálfur lengi vel ekki styðja Trump opinberlega en snerist þó hugur fyrir skömmu en bæði hann og McCain hafa gagnrýnt árásir Trump á foreldra stríðshetjunnar Humayun Khan sem hafa fallið í grýttan jarðveg í Bandaríkjunum. Hillary Clinton, forsetaefni Demókrata, hefur að undanförnu aukið á forskot sitt á keppinaut sinn Trump. Í nýjum skoðanakönnunum sem birtar voru í vikunni er Clinton með allt að fimmtán prósenta forskot á Trump.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira