Afhroð Vals gott dæmi um að enginn á Íslandi er nógu góður fyrir Ólaf í Randers Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. september 2016 10:45 Ólafur Kristjánsson byrjar vel með Randers en Íslendingar úr Pepsi-deildinni koma ekki til hans í janúar. vísir/getty
Ólafur Kristjánsson byrjar frábærlega sem þjálfari Randers í Danmörku. Liðið hefur aldrei byrjað betur í úrvalsdeildinni þar í landi, en Ólafur er með liðið í öðru sæti eftir tíu umferðir, þremur stigum á eftir stórveldinu FCK sem er ríkjandi meistari. Ólafur þjálfaði áður Nordsjælland en var sagt upp í byrjun árs. Þar var hann með í hópnum þegar mest var fjóra Íslendinga en nú er hann aðeins með einn; landsliðsmarkvörðinn Hannes Halldórsson.Í viðtali við Morgunblaðið í dag segir Ólafur að hann horfi ekki til leikmanna í Pepsi-deildinni þegar kemur að því að styrkja liðið í janúar. Þeir eru einfaldlega ekki nógu góðir og er afhroð Vals gegn Bröndby í forkeppni Evrópudeildarinnar í sumar besta dæmið um það. Bröndby vann einvígið samanlagt, 10-0. „Við munum pottþétt reyna að styrkja liðið í janúar en ég mun ekki horfa heim til Íslands hvað það varðar. Ég er búinn að fylgjast mjög vel með Pepsi-deildinni í sumar og ég tel að enginn leikmaður í deildinni myndi styrkja liðið mitt,“ segir Ólafur við Morgunblaðið, en hann var sérfræðingur Pepsi-markanna um deildina í byrjun tímabils. „Munurinn á deildinni hér og heima er mjög mikill og það sást til að mynda vel þegar Valur steinlá fyrir Bröndby í Evropukeppninni í sumar,“ segir Ólafur Kristjánsson.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Sjá meira