Harden með þrennu í sigri Houston | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. nóvember 2016 07:15 Harden hefur verið frábær í vetur. vísir/afp
Fimm leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. James Harden var með þrefalda tvennu þegar Houston Rockets vann öruggan sigur á Portland Trail Blazers á heimavelli, 126-109. Harden skoraði 26 stig, tók 12 fráköst og gaf 14 stoðsendingar en þetta var þriðja þrennan hans á tímabilinu. Eric Gordon og Trevor Ariza skoruðu 16 stig hvor fyrir Houston sem er í 6. sæti Vesturdeildarinnar. C.J. McCollum var atkvæðamestur hjá Portland með 26 stig en hann hitti úr 11 af 19 skotum sínum utan af velli. Jimmy Butler skoraði 20 stig og tók tólf fráköst þegar Chicago Bulls sótti sigur til Utah. Lokatölur 77-85, Chicago í vil. Butler hefur verið í miklu stuði að undanförnu en í síðustu fimm leikjum Chicago er hann með 28,6 stig, 8,0 fráköst, 5,8 stoðsendingar og 2,8 stolna bolta að meðaltali. Þá er þriggja stiga nýting hans í þessum fimm leikjum 47,4%. Þetta var fjórði sigur Chicago í röð en liðið er í 4. sæti Austurdeildarinnar með átta sigra og fjögur töp. Utan er hins vegar í 9. sæti Vesturdeildarinnar. Washington Wizards tók upp á því að vinna leik þegar New York Knicks kom í heimsókn. Lokatölur 119-112, Washington í vil. John Wall skoraði 23 stig og gaf 11 stoðsendingar í liði Washington. Otto Porter Jr. kom næstur með 21 stig og átta fráköst. Derrick Rose skoraði 27 stig fyrir New York og Carmelo Anthony 19 stig.Úrslitin í nótt: Houston 126-109 Portland Utah 77-85 Chicago Washington 119-112 New York Miami 96-73 Milwaukee Minnesota 110-86 PhiladelphiaHarden var með þrennu, sína þriðju á tímabilinu Rudy Gobert refsar körfuhringnum Flottustu tilþrif næturinnar
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira